
Kópavogskrónikan heldur áfram
Samstarf flokkanna fjögurra var sannarlega flókiðEftir kosningar vorið 2010 var okkur í Samfylkingunni mikið kappsmál að mynda meirihluta í bæjarstjórn Kópavogs án þátttöku fyrri meirihlutaflokka. Einungis þannig gætum við breytt vinnubrögðum í stjórnsýslunni til betri vegar frá því sem áður var. Eins og kunnugt er var það ófrávíkjanleg krafa Lista Kópavogsbúa að bæjarstjóri yrði ópólitískur. Það var og er ekkert launungarmál að á þeim tíma höfðu aðrir í þeim meirihluta aðra skoðun, líka fulltrúi Næstbesta flokks. Niðurstaðan varð samt sem áður sú að ganga að kröfum Lista Kópavogsbúa frekar en leita samstarfs t.d. við Framsóknarflokk. Ef það hefði verið mitt helsta markmið á þeim tíma að verma bæjarstjórastólinn þá stóð það vissulega til boða, ég valdi hins vegar aðra leið. Samstarf flokkanna fjögurra var sannarlega flókið og ekki alltaf auðvelt. Rauði þráðurinn í samstarfi okkar voru þó bætt vinnubrögð og betri stjórnsýsla. Innan okkar raða var oftast einhugur um öll mál.
Miklar kröfur gerðar til þess sem gegnir starfi bæjarstjóraBæjarstjóri situr í umboði kjörinna fulltrúa og þeir bera ábyrgð á störfum hans. Gerðar eru miklar kröfur til þess sem gegnir starfi bæjarstjóra. Hann þarf að vera vakinn og sofinn í vinnunni, vera trúr þeim sem hann vinnur fyrir og fylgja vel eftir ákvörðunum bæjarstjórnar. Það er mikilvægt að hans störf og embættisfærslur séu hafin yfir allan vafa. Þetta er vel launað starf einmitt vegna þessara ríku krafna sem til hans eru gerðar. Það hefur verið ljóst í nokkurn tíma að bæjarstjóri náði ekki utan um þetta erfiða og flókna starf sem æðsti embættismaður stjórnsýslu Kópavogs. Nokkrir fundir voru haldnir í meirihlutanum á síðustu mánuðum þar sem störf bæjarstjóra voru rædd. Það hefur ekki verið ágreiningur um það innan meirihlutans að rétt hafi verið að skipta um bæjarstjóra.
Samkomulag um ópólitískan bæjarstjóraEins og Hjálmar benti réttilega á ítrekaði ég það sérstaklega að ég sæktist ekki eftir því að taka við starfi bæjarstjóra á fundi í september þegar framtíð bæjarstjórans var rædd innan meirihlutans. Ég lýsti því einnig yfir í hádegisfréttum RÚV þann 16. janúar að ég teldi það ekkert endilega heppilegt í ljósi aðstæðna að ég yrði sú sem tæki við. Á umræddum fundi þann 12. janúar var framhaldið rætt lítillega, þ.e. hver tæki við starfi bæjarstjóra. Á þeim fundi hélt oddviti VG þeirri skoðun sinni á lofti að næsti bæjarstjóri yrði að vera pólitískur, einungis þannig myndum við ná tökum á stjórnsýslu bæjarins. Á þeim fundi tjáði ég mig ekkert um málið. Ég hef aftur á móti ekki skorast undan þeirri ábyrgð að taka að mér verkefnið en aftur og ítrekað, hef ég aldrei gert það að kröfu minni. Á sunnudeginum 15. janúar hittist meirihlutinn og var sameiginleg niðurstaða þess fundar að leita að bæjarstjóra utan okkar raða.
Hjálmar skipti um skoðunEn eins og svo oft áður skipti Hjálmar um skoðun á milli funda og gekk út úr meirihlutanum tveimur dögum seinna án þess að um nokkurn ágreining væri að ræða. Undangengin fjölmiðlaumfjöllun hafði reynt mikið á okkur og að okkur var sótt af fjölmörgum aðilum utan okkar raða og þá ekki hvað síst pólitískum andstæðingum sem sáu sér leik á borði að reka fleyg í okkar raðir. Það er alltaf erfitt að segja upp starfsfólki og ömurlegt að standa frammi fyrir því að verða sagt upp. Reiði og tortryggni er eðlilegur fylgifiskur. Ég minnist þess ekki að mikið fjaðrafok hafi verið innan okkar raða þegar 13 starfsmönnum bæjarins var sagt upp fyrir rúmu ári síðan vegna hagræðingar. Starfsmenn sem höfðu ekkert til saka unnið og almennt staðið sig vel í starfi. Bæjarstjóri var þó í samningi sínum tryggður í bak og fyrir og gat tekið við starfi áþekku sínu gamla starfi. Ég hafði fullt umboð til að nefna það við hana hvað sem Hjálmar segir nú þar sem ráðningarsamningur bæjarstjóra kveður á um að hún geti gengið að sínu fyrra starfi láti hún af störfum sem bæjarstjóri.
Hjálmari er tíðrætt um trúnaðarbrestÞað er rétt að einn fulltrúi okkar hóps hafði verið í sambandi við fulltrúa Framsóknarflokks með hugsanlegt samstarf í huga. Sjálfur lagði Hjálmar það til í desember að Framsóknarflokki yrði boðið inn í meirihlutann og hann þannig styrktur. En það var niðurstaðan að samstarf þessara fjögurra flokka héldi áfram út kjörtímabilið þótt einn og einn villiköttur ýfði sig af og til. Þannig er það nú bara, við erum öll misjöfn og langt því frá fullkomin.
Við höfum öll gert mistökÞað voru mistök að rita ekki fundargerðir á þeim fundum þegar störf bæjarstjóra voru rædd. Ég gerði klárlega mistök að ganga ein á fund bæjarstjóra að ræða hennar starfslok. Eftir á að hyggja hefðum við átt að fara fjögur, oddvitar allra flokka. Þannig hefði enginn getað vikið sér undan ábyrgð. Ég gerði mistök þegar ég lagði til að bæjarstjóri Kópavogs yrði valinn úr röðum starfsmanna. Þá hefði ég átt að vita að það myndi reynast okkur erfitt að gera kröfu um breytt vinnubrögð með starfsmann bæjarins til áratuga í brúnni. Ég gerði mistök þegar ég lét Hjálmar Hjálmarsson ganga út úr meirihlutanum án þess að leggja mig meira fram um að leiða honum fyrir sjónir hverjar afleiðingar þess gætu orðið og ég gerði mistök að treysta fólki sem var ekki traustsins vert.
Þetta var dýrkeypt fyrir Kópavog. Gamli meirihlutinn sem við lögðum öll kapp á að fella er nú kominn til valda aftur. Meirihluti sem vann það ótrúlega afrek að hækka skuldir bæjarins um tuttugu milljarða frá 2006 -2008. Hann nýtti sér þá upplausn sem varð í okkar röðum sér í hag. Ég skorast ekki undan ábyrgð en ég axla hana ekki ein, við vorum sex í gamla meirihlutanum. Hjálmar á sinn þátt í því hvernig fór.
Skoðun

Nefhjól á Austurvelli – Skiptir öryggi fólks á fjölmennasta svæði landsins ekki máli?
Daði Rafnsson,Kristján Vigfússon,Margrét Manda Jónsdóttir,Martin Swift skrifar

Óður til Sigga sjéní
Ingvi Þór Georgsson skrifar

Álframleiðsla á Íslandi er ekki bara mikilvæg fyrir Ísland
Guðríður Eldey Arnardóttir skrifar

Miðjumoð í húsnæðismálum og áróður Viðskiptaráðs
Jón Ferdínand Estherarson,Unnur Rán Reynisdóttir,Arnar Páll Gunnlaugsson skrifar

Örvæntingafullir endó-sjúklingar
Diljá Mist Einarsdóttir skrifar

Þjóð sem lætur kyrrt liggja?
Magnús Árni Skjöld Magnússon skrifar

Umbætur í innkaupum hins opinbera á upplýsingatækni
Lilja Björk Guðmundsdóttir skrifar

Losar Alþingi um leyfisveitinga-flækjuna?
Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar

Dómsdagur nálgast!
Hólmgeir Baldursson skrifar

Er slysahætta í kringum sorpílátið heima hjá þér?
Anna Jóna Kjartansdóttir,Pétur Gísli Jónsson skrifar

Ég og Parkinson – leitin að greiningu og leiðin til betra lífs
Guðrún Einarsdóttir skrifar

Hvers vegna borga foreldrar í Kópavogi mest?
Eydís Inga Valsdóttir skrifar

Sá tapar sem fyrstur nefnir nasistana: gengisfelling orðsins „rasisti“
Birgir Finnsson skrifar

Aðgengi er lykill að sjálfstæði, þátttöku og virkni
Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar

Hagsmunir heildarinnar - Fjórði kafli: Joshua Fought The Battle of Jericho
Hannes Örn Blandon skrifar

Þetta unga fólk getur bara haldið kjafti
Jón Pétur Zimsen skrifar

Kveðjum sjálfhverfa og fyrirsjáanlega manninn
Halldóra Mogensen skrifar

Hefur ekki náð sér á strik síðan
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Betri vegir, fleiri lögreglumenn og hægt að komast í meðferð á sumrin
Þórður Snær Júlíusson skrifar

Austurland skilar verðmætum – innviðirnir þurfa að fylgja
Kristinn Karl Brynjarsson skrifar

Faglegt mat eða lukka? IV. Faglegt mat og ósvaraðar spurningar
Bogi Ragnarsson skrifar

Skipulögð glæpastarfsemi er ógn við samfélagið
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar

Við erum 40 árum á eftir
Einar Sverrisson skrifar

Þétting á 27. brautinni
Friðjón R. Friðjónsson skrifar

Þá verður gott að búa á Íslandi
Bjarni Karlsson,Jóna Hrönn Bolladóttir skrifar

Faglegt mat eða lukka? III: Tækifæri fyrir löggjafann
Bogi Ragnarsson skrifar

Þingmaður til sölu – bátur fylgir með
Sigríður Svanborgardóttir skrifar

Þeir vökulu og tungumálið sem stjórntæki
Jóhanna Jakobsdóttir skrifar

Umburðarlyndi og kærleikur
Snorri Ásmundsson skrifar

Kolbrún og Kafka
Pétur Orri Pétursson skrifar