Lögmaður Hreiðars Más: Ákæran er vonbrigði 22. febrúar 2012 10:10 Hörður Felix Harðarson, hrl., sést hér að baki Hreiðari Má Sigurðssyni, fyrrverandi forstjóra Kaupþings, þegar hann var að koma út úr yfirheyrslum hjá embætti sérstaks saksóknara.
Hörður Felix Harðarson, hrl., lögmaður Hreiðars Más Sigurðssonar, fyrrverandi forstjóra Kaupþings, segir það vera vonbrigði að embætti sérstaks saksóknara hafi ákveðið að gefa út ákæru eftir ítarlega rannsókn á Al-Thani málinu svokallaða. Hann staðfesti að ákæra hefði verið birt Hreiðari Má sl. föstudag, en aðrir meðal hinna ákærðu eru Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, Magnús Guðmundsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings í Lúxemborg, og Ólafur Ólafsson, fjárfestir, sem var meðal stærstu eiganda Kaupþings fyrir hrun bankans, eins og greint var frá á Vísi í morgun. „Það hefur verið látið í það skína í fjölmiðlaumræðu, að þessi viðskipti hafi verið ein allsherjar sýndarviðskipti, en við rannsókn málsins var það upplýst að svo var ekki. Kaupandi hlutabréfanna bar mikla fjárhagslega áhættu af þessum viðskiptum, og þau byggðu á eðlilegum forsendum. Þess vegna eru það vonbrigði að málið sé komið í þennan farveg. Við munum ekki tjá okkur um þetta mál frekar að svo stöddu. Málið fer nú í sinn farveg fyrir dómstólum og á þeim vettvangi verður svarað fyrir það sem snýr að mínum umbjóðanda," sagði Hörður Felix í samtali við fréttastofu í morgun. Hreiðar Már og Sigurður eru ákærðir fyrir umboðssvik, Magnús fyrir hlutdeild í umboðssvikum, Ólafur fyrir hlutdeild í umboðssvikum en til vara hylmingu og peningaþvætti. Síðan eru þeir allir fjórir ákærðir fyrir markaðsmisnotkun í nokkrum liðum. Málið snýst um lánveitingar Kaupþings banka til sjeik Mohammed Bin Khalifa Al-Thani, bróðir emírsins af Katar, vegna kaupa hans á hlutabréfum í Kaupþingi sem tilkynnt voru 22. september 2008. Ákært er fyrir markaðsmisnotkun fyrir að hafa „ranglega látið líta út að þekktur fjárfestir frá Katar hefði lagt fé til að kaupa á 5,01% hlutafjár í Kaupþingi og borið á þeim fulla markaðsáhættu." Sigurður og Hreiðar eru taldir hafa skipulagt brotin og eru þeir Ólafur og Magnús ákærðir fyrir hlutdeild í brotum þeirra. Nafn Magnúsar hefur ekki verið sérstaklega nefnt áður í þessu samhengi, en hann tók við gögnum sem unnin voru á Íslandi. Þá fór hann til Katar til að hitta sjeikinn. Það var hins vegar Hreiðar Már sem samþykkti allar lánveitingarnar án þess að hafa til þess formlegt samþykki lánanefndar, en um var að ræða þrjú aðgreind lán. Þá er Sigurður Einarsson ákærður fyrir umboðssvik fyrir að hafa farið út fyrir heimildir sínar, sem stjórnarformaður Kaupþings, til lánveitinga. Ólafur er ákærður aðallega fyrir hlutdeild í umboðssvikum, en til vara fyrir hylmingu og peningaþvætti, og er hann sá eini þeirra sem er ákærður fyrir síðastgreindu brotin. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu er stefnt að því að þingfesta ákæruna 7. mars næstkomandi.
Tengdar fréttir Ákært í Al-Thani málinu Embætti sérstaks saksóknara hefur gefið út ákæru í hinu svokallaða Al-Thani máli, sem snýr að kaupum á 5 prósent hlut í Kaupþingi seinni part september mánaðar 2008, rúmum tveimur vikum fyrir hrun bankanna. 22. febrúar 2012 08:57 Hreiðar Már, Sigurður, Magnús og Ólafur ákærðir Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings banka, Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður bankans, Magnús Guðmundsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings í Lúxemborg og Ólafur Ólafsson, sem var annar stærsti hluthafi bankans í gegnum fyrirtæki sín, eru hinir ákærðu í Al-Thani málinu. 22. febrúar 2012 09:31 Mest lesið „Áfengið þarf að vera erlendis þegar þú pantar það“ Viðskipti innlent Frakkar þurfi mögulega að leita aðstoðar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins Viðskipti erlent Helga nýr fjármálastjóri Ísorku Viðskipti innlent Stefna á gervigreindarver við Húsavík Viðskipti innlent Ráðin markaðsstjóri Prís Viðskipti innlent Arnar og Eiríkur til Fossa Viðskipti innlent Þrettán nýir veitingastaðir opna í Smáralind Viðskipti innlent Að púsla saman vinnu, aukavinnu og lífinu Atvinnulíf Hætt hjá Íslenskri erfðagreiningu eftir sjö ára starf Viðskipti innlent Hermann tekur við söluarmi Samherja Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ráðin markaðsstjóri Prís Helga nýr fjármálastjóri Ísorku Stefna á gervigreindarver við Húsavík Arnar og Eiríkur til Fossa „Áfengið þarf að vera erlendis þegar þú pantar það“ Hermann tekur við söluarmi Samherja Hætt hjá Íslenskri erfðagreiningu eftir sjö ára starf Þrettán nýir veitingastaðir opna í Smáralind Mun flytja í nýtt hús við Austurveg á Selfossi Hvernig skipuleggjum við útgjöld heimilisins? Rekstrarhagnaðurinn þremur milljónum krónum hærri Umframeftirspurn eftir skuldabréfum Play Gunnar Ágúst til Dineout Vilhjálmur í Smáríkinu ákærður fyrir að selja eina hvítvínsbelju Þrjú ráðin til Landsbyggðar Pósturinn hættir að senda til Bandaríkjanna: Geti ekki sett fimmtán prósenta toll á allt Melabúðarbræður með hálfan milljarð í fyrra Framkvæmdastjóri Smáríkisins ákærður Pósturinn hættir að senda til Bandaríkjanna á mánudaginn Samherjahjónin fyrrverandi langtekjuhæst Kannast ekki við „lífróður“ Heimildarinnar sem fækkar útgáfudögum Skattakóngurinn flytur úr landi Setja tvo milljarða til í fiskeldið sem tapar hundruðum milljóna „Framboð á markaði er ekki það sem neytendur vilja kaupa“ Móðurfélag útgefanda Moggans tapaði hundruðum milljóna Segir háa stýrivexti bitna á ákveðnum hópi og boðar aðhald í fjárlagafrumvarpi Keyra á orkudrykkjamarkaðinn Kaupa Gompute „Ég bið almenning að hafa þolinmæði með okkur“ Ósáttir með ákvörðun peningastefnunefndar Sjá meira
Ákært í Al-Thani málinu Embætti sérstaks saksóknara hefur gefið út ákæru í hinu svokallaða Al-Thani máli, sem snýr að kaupum á 5 prósent hlut í Kaupþingi seinni part september mánaðar 2008, rúmum tveimur vikum fyrir hrun bankanna. 22. febrúar 2012 08:57
Hreiðar Már, Sigurður, Magnús og Ólafur ákærðir Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings banka, Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður bankans, Magnús Guðmundsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings í Lúxemborg og Ólafur Ólafsson, sem var annar stærsti hluthafi bankans í gegnum fyrirtæki sín, eru hinir ákærðu í Al-Thani málinu. 22. febrúar 2012 09:31