Chris Paul kominn með grímu eins og Kobe Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. mars 2012 23:15 Chris Paul með grímuna sína. Mynd/AP
Það er spurning hvort grímur fari að komast í tísku í NBA-deildinni í körfubolta. Það er löngu orðið frægt að Kobe Bryant þarf að spila með grímu þessi misserin og núna er Chris Paul, leikstjórnandi Los Angeles Clippers, einnig farinn að spila með grímu. Kobe Bryant nefbrotnaði í Stjörnuleiknum á dögunum en Chris Paul fékk högg á nefið í leik á móti San Antonio Spurs. Paul lenti þá í Danny Green, leikmanni Spurs. Chris Paul var með 23 stig og 5 stoðsendingar í fyrsta leiknum með grímuna í nótt en Los Angeles Clippers tapaði þá 93-97 fyrir Golden State Warriors. „Þetta er pirrandi og alls ekki gott fyrir leikstjórnanda. Ég sé ekki hvernig hann á að geta þetta," sagði Kenyon Martin, liðsfélagi Paul í viðtali við Times-blaðið en Martin þurfti einnig að spila með grímu á sínum tíma. „Hann mun ekki sleppa við stríðni," bætti Martin við í léttum tón. Chris Paul kom til Los Angeles Clippers fyrir þetta tímabil og er með 20,3 stig og 8,4 stoðsendingar að meðaltali í fyrstu 34 leikjum sínum á tímabilinu.
NBA Mest lesið Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti Bónorð strax eftir leik í Garðabæ Íslenski boltinn Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Enski boltinn „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti Tvenna Daníels tryggði Víkingi meira en hundrað milljónir Fótbolti Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Fótbolti Kæra forseta FIFA til Alþjóðaólympíunefndarinnar Fótbolti Landsliðsmiðverðirnir skiptu báðir um lið í dag Fótbolti „Hann var farinn að spyrja hvenær við ætluðum að flytja til Íslands“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Sjá meira