Eftirminnilegt og ævintýralegt upphaf í leikhúsinu 20. febrúar 2012 16:30 Sigurður Þór Óskarsson hefur fengið ævintýralega byrjun á leikaraferli sínum en hann hoppar inn í hlutverk fuglahræðunnar í Galdrakarlinum í Oz. Fréttablaðið/Stefán „
Þetta er búið að vera hrikalega skemmtilegt og gaman að fá að vera með í þessu," segir leiklistarneminn Sigurður Þór Óskarsson en hann hefur undanfarið fengið góða reynslu af leikhúsheiminum sem afleysingamaður í leikritinu Galdrakarlinn í Oz. Sigurður Þór leysti leikarann Hilmar Guðjónsson af hólmi um seinustu helgi og hoppaði þar inn í hlutverk fuglahræðunnar, en Hilmar þurfti að skjótast á Kvikmyndahátíðina í Berlín til að taka við Shooting Star verðlaununum. Sigurður fékk tvær vikur til að undirbúa sig fyrir hlutverkið og segist hafa legið yfir handriti og DVD upptökum af leikritinu. „Jújú, mér var bókstaflega hent út í djúpu laugina. Ég held að ég hafi horft á leikritið 20 sinnum. Ég notaði svo kvöldin í handritalestur, fékk eina æfingu með danshöfundinum og eina með leikhópnum," segir Sigurður en hann stundar nám við leiklistardeild LHÍ og útskrifast í vor. Fyrstu sýning Sigurðar fyrir viku síðan var heldur betur eftirminnileg en Halldór Gylfason leikari lenti í kröppum dansi er hann féll niður um lúgu á sviðinu í miðri sýningu og meiddist. Stöðva þurfti sýninguna og leikstjórinn, Bergur Ingólfsson, hljóp í skarðið fyrir Halldór, sem þurfti að fara upp á spítala. „Þetta var mikið sjokk og ég dáist að fagmannlegum viðbrögðum allra við áfallinu. Sýningin gekk vel þrátt fyrir alltsaman," segir Sigurður og óhætt að fullyrða að hans fyrsta sýning í atvinnuleikhúsi hafi verið ævintýraleg en hann fór aftur með hlutverk fuglahræðunnar um liðna helgi sökum meiðsla Halldórs. Hilmar Guðjónsson var þá huglausa ljónið. „Ég er eiginlega bara skítstressaður að kveðja fuglahræðuna því þetta er búið að vera svo gaman og mér hefur verið tekið vel af öllum. Ég get eiginlega ekki beðið eftir að byrja næsta haust og veit að það eru skemmtilegir tímar framundan," segir Sigurður en ekki er langt þangað til hann kemst á svið í Borgarleikhúsinu á ný þar sem hann hefur þegar fengið fastráðningu þar eftir útskriftina í vor. alfrun@frettabladid.is
Mest lesið Íslensk listakona sló í gegn í Miami Lífið Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið Arnór Sig kominn á fast Lífið Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Lífið Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Tónlist „Erum bara vinir“ Lífið Hormónabreytingar geta haft meiri áhrif á tannheilsu kvenna en margan grunar Lífið samstarf Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir Lífið Þessi eru tilnefnd til Hönnunarverðlauna Íslands Tíska og hönnun Fleiri fréttir Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Íslensk listakona sló í gegn í Miami Safna í minningu Johns Snorra fyrir munaðarlaus börn Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“