Ísland: Nyrsta Afríkuríkið? Vilhjálmur Egilsson skrifar 6. desember 2012 06:00 Á fundi Samtaka atvinnulífsins um skattamál þann 9. nóvember sl. gat ég þess að í hópi erlendra fjárfesta væri rætt um Ísland sem nyrsta Afríkuríkið. Ástæðu slíkrar nafngiftar má rekja til ýmissa ákvarðana stjórnvalda og atburða sem hér hafa gerst. Bjarni Gíslason, upplýsingafulltrúi Hjálparstarfs kirkjunnar, skrifaði grein í Fréttablaðið þann 27. nóvember sem ekki er hægt að skilja öðruvísi en svo að hann móðgist fyrir hönd Afríku vegna samanburðarins. Í Afríku þurfi ekki að vantreysta orðum allra manna og Eþíópía, Malaví og Úganda eru nefnd til sögunnar en almennt hvatt til fjárfestinga í álfunni. Tilefni er til þess að ræða nokkuð um hvað veldur því að menn taka svona til orða um Ísland. Alþjóðlegur samanburður á löndum er algengur. Nefna má úttektir á vegum Sameinuðu þjóðanna, Alþjóðabankans og IMD en hér verður bent á tvær alþjóðlegar úttektir, aðra á vegum World Economic Forum (WEF) um samkeppnishæfni og hina á vegum Transparency International (TI) um spillingu. Á lista WEF er Ísland nú í 30. sæti og hefur fallið mikið á síðustu árum. Hæsta Afríkuríkið er Túnis í 40. sæti og á uppleið. Eþíópía, Malaví og Úganda eru í sætum 106, 117 og 121. Á lista TI er Ísland nú á niðurleið í 13. sæti en var áður í einu af efstu sætunum. Hæsta Afríkuríkið er Botsvana í 32. sæti. Eþíópía, Malaví og Úganda eru númer 120, 100 og 143. Erlendir fjárfestar skoða m.a. þessar tölur þegar þeir meta hvar vænlegt er að fjárfesta. Afríkuríki hafa átt erfitt með að laða að erlenda fjárfesta þótt mörg þeirra hafi náð þokkalegum efnahagslegum árangri á síðustu árum. Nú er helst fjallað um að Kínverjar fjárfesti í Afríku umfram aðra.Veik staða Staða Íslands veiktist mjög við hrunið, m.a. álit erlendra fjárfesta á landinu. Það veikir stöðu Íslands enn frekar þegar stjórnvöld standa ekki við gerða samninga hvort heldur þeir eru við innlenda eða erlenda aðila. En við slík mál bætist svo nýtt ástand vegna ógnana og ofbeldisverka gagnvart einstaklingum á Íslandi sem var óþekkt áður. Ber þar einna hæst árás á heimili innanríkisráðherra þar sem kastað var steini inn um stofuglugga og tilviljun ein réði að ekki varð af stór skaði. Ísland hefur verið á niðurleið í alþjóðlegum samanburði meðan ýmis Afríkuríki hafa verið á uppleið. Haldi þessi þróun áfram má vænta þess að einhver Afríkuríki fari upp fyrir Ísland á nokkrum árum. Það getur ekki verið ásættanlegt markmið um framtíð Íslands að halda áfram á slíkri braut. Óþarfi er að taka upp sérstaka þykkju fyrir Afríku þótt sagt sé frá því að í hópi erlendra fjárfesta sé rætt um Ísland sem nyrsta Afríkuríkið. Sannarlega hefur enginn á móti velgengni í Afríku og engin lítilsvirðing felst í samanburði milli landa. Ástæða er til að fagna árangri Hjálparstarfs kirkjunnar í Afríku. Íslendingar þurfa hins vegar að hugsa um að styrkja stöðu sína meðal þjóða heims og stefna að því að vera alltaf í fremstu röð. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Halldór 01.06.2024 Halldór Hvort vilt þú Höllu Tómasdóttur eða Katrínu? Björn Björnsson Skoðun Hatur og fyrirlitning Einar Scheving Skoðun Land míns föður, land minnar móður, landið mitt Jón Gnarr Skoðun Svona velur þú þér forseta í dag Kolbeinn Karl Kristinsson Skoðun Gerum það! Stefán Hilmarsson Skoðun Viddi, Bósi Ljósár og Baldur Þórhalls Heimir Hannesson Skoðun Yfirtaka orðræðunnar (e. hijacking) Sóley Tómasdóttir Skoðun Má Katrín Jakobsdóttir bjóða sig fram? Jón Ólafsson Skoðun Gleðilegan kosningadag kæru landsmenn Snorri Ásmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Ég kýs Michael Jordan (Höllu Hrund Logadóttur) Óskar Arnarson skrifar Skoðun Ástæður til að kjósa Jón Gnarr Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Viddi, Bósi Ljósár og Baldur Þórhalls Heimir Hannesson skrifar Skoðun Gerum það! Stefán Hilmarsson skrifar Skoðun Bónaður brjóstkassi og barnaafmæli Þorbjörg Marínósdóttir skrifar Skoðun Gleðilegan kosningadag kæru landsmenn Snorri Ásmundsson skrifar Skoðun Hæfasti einstaklingurinn Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Verðmætin og sköpunarkraftur sá sem í mannauð okkar býr. Pétur Már Halldórsson skrifar Skoðun Hvort vilt þú Höllu Tómasdóttur eða Katrínu? Björn Björnsson skrifar Skoðun Svona velur þú þér forseta í dag Kolbeinn Karl Kristinsson skrifar Skoðun Takk, Katrín Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hatur og fyrirlitning Einar Scheving skrifar Skoðun Samherjar Hafþór Reynisson skrifar Skoðun Að hitta hetjuna sína Gréta Kristín Ómarsdóttir skrifar Skoðun Einstakt tækifæri Þóra Valný Yngvadóttir skrifar Skoðun Um afrekskonuna Katrínu Tómas Ísleifsson skrifar Skoðun Land míns föður, land minnar móður, landið mitt Jón Gnarr skrifar Skoðun Óskað eftir forseta sem færir ungu fólki völd Valgerður Eyja Eyþórsdóttir skrifar Skoðun Með ósk um velgengni, Halla Hrund Viðar Hreinsson skrifar Skoðun Ég styð Höllu Hrund Logadóttur Þórólfur Árnason skrifar Skoðun Arnar Þór Jónsson Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Að skreyta sig með stolnum fjöðrum Sema Erla Serdaroglu skrifar Skoðun Opið bréf til Jóns Ólafssonar heimspekings Tómas Ísleifsson skrifar Skoðun Persónan Katrín Jakobsdóttir Sólveig Hildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Tóbak markaðssett fyrir ungt fólk Guðlaug B. Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Forsetinn, NATÓ, ýsan og blokkin Guðfinnur Sigurvinsson skrifar Skoðun „Svona er á síld“ Stefán Hilmarsson skrifar Skoðun Aldrei hitta hetjurnar þínar Skarphéðinn Guðmundsson skrifar Skoðun Yfirtaka orðræðunnar (e. hijacking) Sóley Tómasdóttir skrifar Sjá meira