Innlent

Framfleytti sér og fjölskyldu sinni með vændi í fimm ár

Í Íslandi í dag í kvöld kemur fram kona sem leiddist út í vændi vegna fátæktar og framfleytti sér og börnum sínum samhliða láglaunaðri vaktavinnu í fimm ár. Hún hélt því leyndu fyrir fjölskyldu sinni og var með tíu til fimmtán kúnna.

„Þetta voru allar gerðir: giftir, ógiftir ... en ofboðslega margir giftir," segir hún meðal annars. Að lokum tókst henni hins vegar að brjótast úr þessum vítahring eins og hún kallar það með aðstoð Stígamóta.

Í þættinum kynnir Helga Arnardóttir fréttakona sér einnig starfsemi athvarfs sem nýlega var sett á fót fyrir konur í vændi og fórnarlömb kynferðisofbeldis.

Hér fyrir ofan má sjá umfjöllun Íslands í dag um málið. Einnig er hægt að horfa á hana á sjónvarpsvef Vísis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×