Lakers þarf að borga tugi milljarða í lúxusskatt vegna Howard og Nash Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. ágúst 2012 23:45 Dwight Howard Mynd/AP
Los Angeles Lakers hefur styrkt sig mikið fyrir komandi tímabil í NBA-deildinni í körfubolta því félagið krækti í stjörnuleikmennina Dwight Howard og Steve Nash í sumar. Fyrir eru kappar eins og Kobe Bryant og Pau Gasol og því verður Lakers-liðið sannkallað stjörnulið næsta vetur. Það er aftur á móti ekki ódýrt að tefla fram svona mörgum stjörnum saman. ESPN fékk álit Larry Coon, sérfræðings í launaþaki NBA-deildarinnar og að samkvæmt hans mati mun lúxusskattur eiganda Lakers fara stigvaxandi næstu árin. Lið í NBA-deildinni sem fara yfir launaþakið þurfa að borga lúxusskatt sem er síðan dreift á milli þeirra félaga sem eru undir þakinu. Lakers þarf að greiða 30 milljónir dollara í lúxusskatt fyrir komandi tímabil, 3,6 milljarða íslenskra króna en það eru bara smáaurar miðað við það sem bíður tímabilin á eftir. Lúxusskatturinn verður kominn upp í 85 milljónir dollara tímabilið 2013-14 vegna ákvæðis í nýja samningnum og breytist ekkert þarf eigandi Lakers að borga 115 milljónir dollara í lúxusskatt fyrir tímabilið 2014-2015 eða 13,8 milljarða íslenskra króna. Lakers þarf einnig samkvæmt nýja samningnum að greiða hluti ágóða síns til hinna félaganna í deildinni. Larry Coon hefur því reiknað það út að stjörnufans Lakers muni alls kosta eiganda Lakers 240 milljónir dollara tímabilið 2013-2014 eða 28,9 milljarða íslenskra króna. Sú upphæð mun síðan margfaldast tímabilið á eftir. Það er því ekki ódýrt fyrir Los Angeles Lakers að fá til sín þá Dwight Howard og Steve Nash og ekkert nema meistaratitill getur réttlætt þessar stóru upphæðir fyrir eigandanum Jerry Buss.
NBA Mest lesið „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Körfubolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Þór/KA - Víkingur 4-6 | Víkingur Reykjavík á sigurbraut Íslenski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira