Drómi hf. – innheimtu- fyrirtæki með ríkisábyrgð Björn Steinbekk Kristjánsson skrifar 4. apríl 2012 06:00 Drómi hf. er hlutafélag sem innheimtir lán sem voru í eigu SPRON og Frjálsa Fjárfestingabankans og er að fullu í eigu slitastjórnar SPRON/Frjálsa fjárfestingabankans. Það sem gerir Dróma hf. frábrugðinn öðrum fjármálastofnunum er sá að Drómi hf. er í raun innheimtufyrirtæki sem hefur engan hag af því að vinna með eða þjónusta sína viðskiptavini þó forsvarsmenn Dróma hf. hafi reynt af veikum mætti að halda öðru fram. Fyrirkomulagið sem Drómi hf. starfar eftir er frábrugðið öllu öðru sem ríkið og Fjármálaeftirlitið komu að og settu upp eftir efnahagshrunið 2008. Engar skýringar hafa fengist hvers vegna þessi leið var kosin og hvers vegna þeir sem voru í viðskiptum við Frjálsa fjárfestingabankann og SPRON voru settir í aðra aðstöðu en aðrir viðskiptavinir íslenska bankakerfisins. Það sem er hins vegar athyglisvert við þetta mál er sú staðreynd að Drómi hf. er rekinn með ríkisábyrgð. Ástæðan er sú að ríkið gaf ríkisábyrgð fyrir innlánum hjá SPRON sem flutt voru til Arion Banka. Það er síðan verkefni Dróma hf. að innheimta lán hjá viðskiptavinum og tryggja að heimtur verði slíkar að ekki komi til þess að ríkið verði fyrir tapi sbr. áðurnefnda ríkisábyrgð vegna innlána. Forsvarsmenn slitastjórnar SPRON/Frjálsa fjárfestingabankans hafa sagt stjórnvöldum að verðmæti útlánasafns þeirra sé um 10% hærra en innlánatrygging ríkisins. Þessi 10% gera það að verkum að Drómi hf. fær að starfa áfram og koma fram á slíkan hátt að þúsundir manna sitja ekki við sama borð og þeir sem skulduðu öðrum viðskiptabönkum á Íslandi fyrir hrun. Kjarni málsins er hins vegar sá að Drómi hf. er orðinn eitt af óhreinu börnunum hennar Evu. Efnahags- og viðskiptaráðherra viðurkenndi í símtali við mig að það væri ótækt að Drómi hf. yrði rekinn áfram á sama hátt. Leysa þyrfti málið og það sem fyrst. Hann sagði enn fremur að Fjármálaeftirlitið bæri alla ábyrgð á því að Drómi hf. hefði verið stofnaður og ætti sem eftirlitsaðili að skoða málið ofan í kjölinn. Dróma-kjölurinn hefur ekki enn verið skoðaður því að er erfitt að rannsaka það sem maður skapar sjálfur. Það er einnig erfitt að hirta þá sem maður skipar í stöður og braut brauð með í mötuneyti FME til fjölda ára. Helgi Hjörvar, formaður efnahags- og viðskiptanefndar, hefur lofað að halda fund með undirrituðum, FME, efnahags- og viðskiptaráðherra og umboðsmanni skuldara til að ræða málefni skuldara hjá Dróma hf. en erfitt virðist vera að boða þann fund. Það sem undirritaður leggur til að stjórnvöld beiti sér fyrir er eftirfarandi þar sem ríkið hefur jú ábyrgst rekstur Dróma hf. með ríkisábyrgð: Ÿ Að úttekt verði gerð á rekstri Dróma hf. og kostnaði við rekstur félagsins. Ÿ Að óháð endurskoðunarfyrirtæki geri úttekt á lánasafni Dróma hf. með tilliti til þess hver munurinn sé á milli innlánatryggingar og útlána. Vert er að benda á að auðvelt er að sjá hvað Drómi hf. metur lánasafnið á með því að skoða hvað þær eignir sem Drómi hefur leyst til sín á nauðungarsölum hafa selst á fasteignamarkaði. Fróðir menn telja að útlán muni ekki duga fyrir innlánatrygginu ríkisins. Ÿ Að lausafjárstaða Dróma hf. verði skoðuð. Seðlabanki Íslands er einn af stærstu kröfuhöfum Dróma hf. í gegnum eignasafn sitt. Það ættu því að vera hæg heimatökin að taka á málefnum Dróma hf. í eitt skipti fyrir öll. Það er ótækt að stjórnvöld og opinber eftirlitsaðili með stjórnvaldsákvörðun mismuni fólki eins og gert er í málefnum viðskiptavina Dróma og annarra fjármálastofnana á Íslandi. Það er kominn tími á að stjórnvöld leiðrétti málefni skuldara Dróma og biðji þennan hóp afsökunar á framkomunni sem þeir hafa mátt þola. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hvers vegna venjulegt launafólk á að segja JÁ? Margrét Högnadóttir Skoðun Ég er ekki Evrópusinni Óðinn Freyr Baldursson Skoðun Hvers vegna „nei“ er eina rökrétta svarið þann 29. ágúst Eggert Sigurbergsson Skoðun Þetta snýst um aðild Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Það sem gögnin fundu ekki Elliði Vignisson Skoðun Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu Hjörtur Hjartarson Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir Skoðun Hvaða kröfur eigum við að gera? Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Króna eða evra? Bolli Héðinsson Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson Skoðun Skoðun Skoðun Íslenskir vefir á faraldsfæti Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Ég er ekki Evrópusinni Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Hjarðarbólsoddi Oddur Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta snýst um aðild Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna „nei“ er eina rökrétta svarið þann 29. ágúst Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hvaða kröfur eigum við að gera? Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna venjulegt launafólk á að segja JÁ? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar Skoðun Er kominn tími á „Íslenska landklasann“? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Um hvað er hægt að semja? Jónas Már Torfason skrifar Skoðun Sumarið, samveran og samspil taugakerfa Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Þegar peningarnir og pólitíkin mæta nýjum veruleika Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Bíp... bíp... bíp… Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Króna eða evra? Bolli Héðinsson skrifar Skoðun Dauðans alvara – fölsuð lyf og ólögleg lyfsala Alma D. Möller,Rúna Hauksdóttir skrifar Skoðun Hvað er samfélagsmiðill? Anna Laufey Stefánsdóttir skrifar Skoðun Stöðugleiki í heljargreipum Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu Hjörtur Hjartarson skrifar Skoðun Það sem gögnin fundu ekki Elliði Vignisson skrifar Skoðun Eru Íslendingar afglapar í samningatækni? Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Baldur snýr heim á Breiðafjörð Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar allir bera ábyrgð? Snorri Birgisson skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru samningaviðræður Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Dagur, bannað að plata! Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Íslenska sumarveðrið dýrmæt auðlind? Gunnar Salvarssson skrifar Skoðun Við þurfum ekki að kaupa gervigreindarfullveldið að utan Hafsteinn Einarsson skrifar Skoðun Fullvinnsla heima, tollfrjálsir markaðir og raunhæf leið til að styrkja Krónuna og landsbyggðina Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ég hélt að ég væri bara óvenju hrætt foreldri Heiðrún V. Ingudóttir skrifar Skoðun Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar
Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar
Skoðun Fullvinnsla heima, tollfrjálsir markaðir og raunhæf leið til að styrkja Krónuna og landsbyggðina Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson skrifar