Þreytandi klisjur og blekkjandi Snorri Páll Jónsson Úlfhildarson skrifar 4. apríl 2012 06:00 Þegar þagga á niður í andófi, gera lítið úr því og þeim sem að því standa, er oft eins og tiltekin runa, vélræn upptalning á örfáum nöfnum og atburðum, komi upp í huga fólks. Rosa Parks, Martin Luther King, Mahatma Gandhi, Nelson Mandela — nafnalistanum er beinlínis kastað fram og honum ætlað að gera öllum ljóst að samanborið við þessar manneskjur sé andófsfólkið sem gagnrýnt er ómerkilegt, lítilvæglegt og ómarktakandi. Allt sem fjórmenningarnir ofangreindu eru ekki. Og það sem mestu skiptir: Nöfnunum er stillt upp sem kyndilberum passífsmans — lifandi sönnunum þess að friðsamt andóf ekki bara virki heldur sé hinu ófriðsamlega og öfgafulla bæði göfugra og áhrifaríkara. Akkúrat þessari runu skellti laganeminn Hrafn Jónsson fram í grein sem birtist á síðum þessa sama blaðs á síðasta degi marsmánuðar. Umræðuefnið var femínismi og bauð laganeminn upp á hin ýmsu orð sem ákveðnir femínistar skyldu sko taka til sín: Ofstæki. Afskræming hugtaka. Blóðugur vígvöllur. Hatur. Öfgar. Allt ljót orð. En munum, sagði hann, að fjórmenningarnir létu ekki leiðast út í slíkt svað og „óumdeilt“ að árangur þeirra „á sér vart hliðstæðu“. Ég ætla ekki að blanda mér inn í þessa tilteknu umræðu um femínisma en leyfi mér hins vegar að setja allnokkur spurningarmerki við slíkan söguskilning og svara svo sjálfur. Óhlýðni Rosu Parks birtist hvorki út úr tómi né inn í eitt slíkt. Hún er einungis brotabrot úr því gríðarstóra fjalli sem frelsisbarátta blökkumanna var og er og inniheldur allt frá bréfaskrifum og ræðuhöldum til herskárra aðgerða og vopnaburðar. Það sama á við um Martin Luther King þótt samkvæmt vel ritrýndri söguskoðun sé honum gjarnan stillt upp sem einhvers konar einvaldi frelsisbaráttunnar, andspænis herskárri þáttum hennar – sem oft eru smættaðir niður í einn mann, Malcolm X – til marks um almætti hins friðsama. Svipaða sögu má auðvitað segja um Gandhi og frelsisbaráttuna á Indlandi. Þar er ljóst að flókið samspil borgaralegrar óhlýðni, vopnaðs andófs, og loks ýmissa utanaðkomandi áhrifa á getu Breta til að viðhalda nýlenduvöldum sínum, leiddi á endanum til þess sem Gandhi og hans fylgismönnum er yfirleitt einum eignað. Bandaríski rithöfundurinn Peter Gelderloos hefur í því sambandi nefnt nöfn tveggja manna sem engu síður en Mahatma ættu að eiga en eiga ekki öruggan stað í sögubókunum – Chandrasekhar Azad og Bhagat Singh sem báðir leiddu vopnað andóf gegn yfirráðum Breta. Loks er það Nelson Mandela – en hann tók jú þátt, og gott betur, stofnaði bæði og leiddi Umkhonto we Sizwe, vopnaðan arm Afríska þjóðarráðsins, sem beitti skemmdarverkum og ofbeldi í baráttunni gegn aðskilnaðarstefnu Suður-Afríku. Það væri auðvitað ekki rétt að halda því fram að andóf sem stígur handan marka hins friðsama sé eitt og sér alltaf áhrifaríkara en það sem heldur sig innan friðarmúranna. En það er ámóta vitlaust og á sama tíma blekkjandi að kasta fram nöfnum og atburðum á borð við frelsibaráttu blökkumanna og Indverja, andspyrnu við aðskilnaðarstefnur –jafnvel atburðum eins og frönsku byltingunni, sem mörgum þykir jú fínt að punta sig með á tyllidögum – eins og um eintómar friðarsamkundur appelsínugulra borðabera hafi verið að ræða. Vitræn umræða tengd andófi krefst þess að vera laus við ofangreindar og aðrar álíka klisjur, slík ósannindi, sem og dogmatíska upphafningu á passífisma – miklu frekar en einhverjar meintar öfgar sem fæstir geta svo, þegar upp er staðið, útskýrt í hverju felast. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Gervigreindin kolfellur á öllum prófum. Er bólan að bresta? Brynjólfur Þorvarðsson Skoðun Halldór 16.08.2025 Halldór Hér er það sem Ágúst sagði ykkur ekki Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Fimm ár í feluleik Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Falið heimsveldi Al Thani-fjölskyldunnar Finnur Th. Eiríksson Skoðun Við styðjum Ingólf Gíslason og annað starfsfólk í akademískri sniðgöngu Elía Hörpu og Önundarbur,Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir,Íris Ellenberger,Sjöfn Asare Skoðun Þetta þarftu að vita: 12 atriði Ágúst Ólafur Ágústsson Skoðun Eineltið endaði með örkumlun Davíð Bergmann Skoðun Ég frétti af konu Gunnhildur Sveinsdóttir Skoðun Af hverju skiptir vökvagjöf okkur svona miklu máli? Hanna Birna Valdimarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Af hverju skiptir vökvagjöf okkur svona miklu máli? Hanna Birna Valdimarsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kolfellur á öllum prófum. Er bólan að bresta? Brynjólfur Þorvarðsson skrifar Skoðun Kerfisbundið afnám réttinda kvenna — Staða afganskra kvenna 4 árum eftir valdatöku talíbana Ólafur Elínarson,Anna Steinsen skrifar Skoðun Hér er það sem Ágúst sagði ykkur ekki Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Framtíð íslensks menntakerfis – lærum af Buffalo og leiðandi háskólum heims Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Öryggismenning – hjartað í ábyrgri ferðaþjónustu Ólína Laxdal,Sólveig Nikulásdóttir skrifar Skoðun Nýsamþykkt aðgerðaáætlun í krabbameinsmálum – aldrei mikilvægari en nú Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Falið heimsveldi Al Thani-fjölskyldunnar Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Við styðjum Ingólf Gíslason og annað starfsfólk í akademískri sniðgöngu Elía Hörpu og Önundarbur,Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir,Íris Ellenberger,Sjöfn Asare skrifar Skoðun Hið landlæga fúsk Helga Sigrún Harðardóttir skrifar Skoðun Þetta þarftu að vita: 12 atriði Ágúst Ólafur Ágústsson skrifar Skoðun Ég frétti af konu Gunnhildur Sveinsdóttir skrifar Skoðun Rangfærslur ESB-sinna leiðréttar Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Eineltið endaði með örkumlun Davíð Bergmann skrifar Skoðun Akademísk kurteisi á tímum þjóðarmorðs Finnur Ulf Dellsén skrifar Skoðun Við megum ekki tapa leiknum utan vallar Eysteinn Pétur Lárusson skrifar Skoðun Börnin heyra bara sprengjugnýinn Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Gagnslausa fólkið Þröstur Friðfinnsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsi Laufey Brá Jónsdóttir,Sigríður Kristín Helgadóttir,Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Allt mun fara vel Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Normið á ekki síðasta orðið Katrín Íris Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ég er eins og ég er, hvernig á ég að vera eitthvað annað? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Við lifum á tíma fasisma Una Margrét Jónsdóttir skrifar Skoðun Örvæntingarfullir bíleigendur í frumskógi bílastæðagjalda Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Hinir miklu lýðræðissinnar Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kolefnishlutleysi eftir 15 ár? Hrafnhildur Bragadóttir,Birna Sigrún Hallsdóttir skrifar Skoðun Gleði eða ógleði? Haraldur Hrafn Guðmundsson skrifar Skoðun Tískuorð eða sjálfsögð réttindi? Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Ráðherrann og illkvittnu einkaaðilarnir Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Áttatíu ár frá Hírósíma og Nagasakí Snæbjörn Guðmundsson skrifar Sjá meira
Við styðjum Ingólf Gíslason og annað starfsfólk í akademískri sniðgöngu Elía Hörpu og Önundarbur,Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir,Íris Ellenberger,Sjöfn Asare Skoðun
Skoðun Kerfisbundið afnám réttinda kvenna — Staða afganskra kvenna 4 árum eftir valdatöku talíbana Ólafur Elínarson,Anna Steinsen skrifar
Skoðun Framtíð íslensks menntakerfis – lærum af Buffalo og leiðandi háskólum heims Sigvaldi Einarsson skrifar
Skoðun Öryggismenning – hjartað í ábyrgri ferðaþjónustu Ólína Laxdal,Sólveig Nikulásdóttir skrifar
Skoðun Nýsamþykkt aðgerðaáætlun í krabbameinsmálum – aldrei mikilvægari en nú Halla Þorvaldsdóttir skrifar
Skoðun Við styðjum Ingólf Gíslason og annað starfsfólk í akademískri sniðgöngu Elía Hörpu og Önundarbur,Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir,Íris Ellenberger,Sjöfn Asare skrifar
Skoðun Tjáningarfrelsi Laufey Brá Jónsdóttir,Sigríður Kristín Helgadóttir,Þorvaldur Víðisson skrifar
Skoðun Örvæntingarfullir bíleigendur í frumskógi bílastæðagjalda Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar
Við styðjum Ingólf Gíslason og annað starfsfólk í akademískri sniðgöngu Elía Hörpu og Önundarbur,Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir,Íris Ellenberger,Sjöfn Asare Skoðun