Segja bilun skýra mengunina 6. október 2012 03:00 Flúor er einn helsti mengunarvaldur frá álverum. fréttablaðið/valli fréttablaðið/valli
Umhverfisvöktun vegna álvers Alcoa Fjarðaáls í Reyðarfirði í sumar leiddi í ljós hækkaðan styrk á flúor í grasi í firðinum. Í tilkynningu Umhverfisstofnunar í gær kom fram að mengunin væri umfram viðmið fyrir grasbíta en ekki væri um að ræða hættu fyrir fólk. Skýringar á menguninni komu frá Fjarðaáli síðdegis en Umhverfisstofnun kallaði eftir nánari úttekt á orsökum og afleiðingum mengunarinnar frá fyrirtækinu. Umhverfisstofnun telur fulla ástæðu til að bregðast við; kanna hvort áhrifa gæti í búfé í firðinum og hver styrkur flúors sé í heyi áður en teknar verði ákvarðanir um frekari aðgerðir. Óskað var eftir tillögum að frekari rannsóknum hjá Náttúrustofu Austurlands og greindi stofnunin sveitarstjórn, heilbrigðiseftirliti og Matvælastofnun frá málinu. Í tilkynningu frá Alcoa Fjarðaáli segir að nokkrir samverkandi þættir skýri mengunina, meðal annars bilun í tæknibúnaði sem búið er að gera við. Nýjar mælingar staðfesta að meðaltalsgildi flúors frá álverinu er nú komið í eðlilegt horf, segir þar. Í samræmi við starfsleyfi Fjarðaáls verða áhrif flúoraukningarinnar rannsökuð sérstaklega. Fjarðaál mun halda áfram að vinna að úrlausn málsins í samvinnu við Umhverfisstofnun og hagsmunaaðila í Fjarðabyggð, segir í tilkynningu fyrirtækisins. - shá
Mest lesið Ferðamaður fannst látinn og þriggja saknað á eyjum Grikklands Erlent Palestínufánar í Mosfellsbæ vekja upp misgóð viðbrögð Innlent „Þetta var bara eins og hryðjuverk“ Innlent Hver er þessi 28 ára maður sem gæti orðið forsætisráðherra Frakka? Erlent Vitni segir bílinn hafa ekið hratt fram úr sér skömmu fyrir slysið Innlent Efast um viðbrögð frá ráðherrum í ljósi „sjálfsmorðsmissjóns“ VG Innlent Ósammála Hæstarétti og telja brot Brynjars nauðgun Innlent Fjallkonan í ár er Ebba Katrín Innlent „Hvernig getur sama fólk snúist svona í skoðunum sínum?“ Innlent Flokkurinn standi ekki lengur með mannréttindum Innlent Fleiri fréttir Borgarstjóri fór fyrstu ferð í nýju parísarhjóli Sextán sæmdir heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu Ósammála Hæstarétti og telja brot Brynjars nauðgun Hvergi betra að búa en á Íslandi Palestínufánar í Mosfellsbæ vekja upp misgóð viðbrögð Efast um viðbrögð frá ráðherrum í ljósi „sjálfsmorðsmissjóns“ VG Skora á Sjúkratryggingar að semja við tvo heimilislækna Flokkurinn standi ekki lengur með mannréttindum Fjallkonan í ár er Ebba Katrín Þjóðhátíðardagur, Arnarlax og úrsögn úr Samfylkingunni Rafmagn er komið á í Mosfellsbæ Eldur kviknaði í iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði „Þetta var bara eins og hryðjuverk“ „Hvernig getur sama fólk snúist svona í skoðunum sínum?“ Sælkerasveppir ræktaðir í gróðrarstöð í Mosfellsdal Óttast að Quang Le hafi samband við þolendur Vitni segir bílinn hafa ekið hratt fram úr sér skömmu fyrir slysið Altjón í tíu búðum Kringlunnar og undirbúningur fyrir þjóðhátíðardaginn Oddviti Garðarbæjarlistans hættir í Samfylkingunni Neita að borga tjón eftir að hafa mokað snjó yfir bíl Stútfull hátíðardagskrá um allt land á 17. júní „Þetta er stórtjón fyrir okkur“ Parísarhjól sprettur upp við höfnina Stefna á að opna Kringluna á þriðjudag Fá ekki fjármagn til að laga Flóttamannaleiðina fyrr en 2028 Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni Það verði „drulluerfitt“ að rífa VG úr lægðinni Jarðaberjarækt í grænum iðngarði í Helguvík Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Sjá meira