Innlent

Tvö dekk á einkavél sprungu við lendingu

Flugstjórnarklefi
Flugstjórnarklefi
Tvö dekk sprungu á einkavél sem var að lenda á Keflavíkurflugvelli í vikunni. Um er að ræða tveggja hreyfla skrúfuvél með sæti fyrir 76 farþega. Engir farþegar voru um borð heldur einungis tveir flugmenn.

Í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum reyndist vera sprungið á báðum vænghjólunum hægra megin, en vélin er samtals með fimm hjól.

„Flugmennirnir urðu að stöðva vélina við brautarmót á flugvellinum áður en þeir gátu ekið henni í stæði. Þeir greindu lögreglunni á Suðurnesjum frá því að þeir hefðu verið að koma frá Goose Bay í Kanada og væru að ferja vélina til Finnlands. Við flugtak í Goose Bay hefði verið mikill krapi og bleyta á flugbrautinni, sem augljóslega hefði farið inn í hjólabúnaðinn og frosið þar á leiðinni til Íslands með framangreindum afleiðingum. Slökkvilið mætti á vettvang og flugturni og flugslysanefnd var kynnt málið," segir ennfremur í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×