Mengun í Ytri-Rangá aðallega ímyndarmál Garðar Örn Úlfarsson skrifar 14. desember 2012 08:00 Ytri-Rangá er mikið gríðamikil lindará fráveitan á Hellu mengar lítið. Þegar óhöpp verða mislíkar veiðimönnum hins vegar að sjá úrgang fljótandi niður ánna. Mynd / Garðar
Úrgangur sem lekið hefur í Ytri-Rangá frá kjúklingasláturhúsi á Hellu er fyrst og fremst sjónræn mengun en hefur ekki valdið skaða í lífríkinu. Ofangreint kemur fram í Drögum að stöðuskýrslu fyrir vatnasvæði Íslands. Eins og kunnugt er hafa veiðimenn við Ytri-Rangá einstaka sinnum orðið varir við kjúklingaúrgang fljótandi í ánni. Lax-á, leigutaki árinnar, er einmitt um þessar mundir að krefjast milljóna króna í skaðabætur eftir eitt óhappið sem varð í fyrrasumar. Fyrirtækið segist hafa orðið af miklum tekjum vegna veiðimanna sem þurft hafi frá að hverfa. Í stöðuskýrslunni segir að mælingar í október síðastliðnum hafi sýnt litla saurkólígerlamengun við og neðan við hreinsistöð í fráveitunni á Hellu. "Þessar niðurstöður benda til að viðtakandinn, Ytri-Rangá, sé ekki undir álagi vegna gerla og lífrænna efna úr þéttbýlisfráveitu," segir í skýrslunni. Áfram segir að tímabundið en umtalsvert álag hafi orðið í Ytri-Rangá vegna mengunar af völdum fitu og sláturúrgangs frá sláturhúsum þegar fitugildrur hafi yfirfyllst, einkum hjá kjúklingasláturhúsi Reykjagarðs. "Nokkrum sinnum á síðustu árum hefur slíkur úrgangur farið beint í ánna út af þessu," segir í skýrslunni. Þá segir að hreinsibúnaðurinn sé kominn á tíma og þarfnist úrbóta að mati Heilbrigðiseftirlits Suðurlands. "Þetta eru fyrst og fremst mjög neikvæð sýnileg áhrif sem skaðað geta ímynd þessarar vinsælu veiðiár," segir í stöðuskýrslunni sem gerð er af Umhverfisstofnun.
Stangveiði Mest lesið Hættir að veiða í Skotlandi Veiði Laxinn er mættur Veiði Ævintýri við erfiðar aðstæður Veiði Norðurá að gefa fleiri tveggja ára laxa Veiði Fyrsta Opna Hús vetrarins hjá SVFR Veiði Orðið fært fyrir jeppa upp í Veiðivötn Veiði 99 sm lax í Elliðaánum Veiði Mikið af 2 ára laxi í Eystri Rangá Veiði Lokatalan 6068 laxar í Miðfjarðará Veiði Róleg veiði en margir við bakkann Veiði