
Landsnet greiðir fyrir risa- stjóriðju á kostnað almennings
Enginn misskilningur er til staðar af hálfu undirritaðs og ágæt þekking á hlutverki Landsnets fyrir hendi, þótt eflaust sé hún meiri hjá forstjóra fyrirtækisins, eðli málsins samkvæmt. Eftir frekari skoðun er þó ljóst að staðan er verri en ég upphaflega ætlaði.
Landsnet hefur skv. lögum skyldum að gegna gagnvart þjóðfélaginu öllu en sinnir þeim ekki með samfélagslega hagsmuni að leiðarljósi. Stóriðjuvæðing af gamla skólanum er leiðarljósið. Fyrirtækið getur ekki eingöngu séð til þess að almenningur borgi fyrir raforkuflutningskerfi stóriðjuvera – í stað þess að arðsemi stóriðjurekstursins geri það – heldur eru kostnaðarútreikningar beintengdir stórri kostnaðarbreytu sem fyrirtækið skilgreinir sjálft á forsendum sérhagsmuna, í samráði við ráðgjafana sem forstjórinn treystir svo vel (raforkulög 65/2003, sbr. breytingu á 12. gr. með lögum 19/2011). Þótt kveðið sé á um þjóðhagslega hagkvæmni og umhverfissjónarmið virðist enga skilgreinda hvata að finna í þá veru. Þvert á útúrsnúninga forstjóra fyrirtækisins þá getur Landsnet einmitt hámarkað hagnað sinn á kostnað samfélagsins, innan ramma laganna.
Undirritaður hefur ekki misskilið skoðun sína, þrátt fyrir tilraunir forstjóra Landsnets til þess að halda öðru fram. Táknmynd liðinna tíma endurspeglast ekki síst í aðferðafræði Landsnets sem vinnur ötullega að því að fá sífellt fleiri í samfélaginu upp á móti sér. Sú aðferðafræði við greiningu á gæðum gegn hagkvæmni – svo ekki sé talað um sjónræn áhrif – er sömuleiðis endurspeglun úreltra forsendna og einkennist af skammtímasjónarmiðum um arðsemi en ekki samfélagslegri hagkvæmni til langs tíma. Ef Landsnet vill fræðast um þróun nýrra lausna verður fyrirtækið að opna vettvang fyrir það en ekki loka sig af með ráðgjöfum sínum.
Það er e.t.v. mat forstjóra Landsnets að möstrin sem ráðgert er að reisa hafi lítil umhverfisáhrif. Í matsskýrslu kemur hinsvegar fram að þessi nýju möstur eru helmingi hærri en þau sem þar eru fyrir og þau munu standa í tvöfaldri til þrefaldri röð í þeirri hæð og þekja 110m til 140m breitt svæði yfir marga tugi kílómetra. Nýr háspennuskógur á Reykjanesskaga verður að veruleika! Þá liggja engar upplýsingar fyrir um sjónræn áhrif tengivirkis á Njarðvíkurheiði með tilheyrandi víravirki ásamt stórri 18m hárri 4.000m2 byggingu – beint við bæjardyr Reykjanesbæjar. E.t.v. er það mat forstjórans að allt þetta hafi engin áhrif á umhverfið. Í reynd er um alvarleg neikvæð umhverfisáhrif að ræða (matsskýrsla bls.28 og 60).
Myndir á vefsvæðinu www.sudvesturlinur.is eru ósannfærandi og sjónarhornin virðast valin með það í huga að gera sem minnst úr sjónrænum áhrifum nýju mastranna. Þar eru t.a.m. nokkrar myndir þar sem ekkert sést – hvorki fyrir né eftir breytingu. Eru þetta þá ósýnileg möstur? Er það nútímaverkfræðin sem forstjóri Landsnets vísar til? Reynt er að því er virðist að fela þá neikvæðu birtingarmynd sem mun blasa við Suðurnesjafólki sem og öllum ferðamönnum sem sækja Ísland heim um flugstöðina.
Sérhagsmunagæsla Landsnets felst m.a. í skilgreiningunni á hagkvæmni. Neikvæðu afleiðingarnar sem felast í hönnunarvinnu Landsnets og ráðgjafanna traustu eru hreinlega af allt annarri stærðargráðu en mögulega afleiddar breytingar á hinu skilgreinda „flutningsgjaldi“ sem vísað er í.
Um er að ræða neikvæða ímynd svæðisins í heild í marga áratugi, lækkun fasteignaverðs, verri skilyrði til uppbyggingar ferðamennsku og minnkun gæða rýmisins sem íbúar svæðisins búa við. Víðtæk efnahagsleg neikvæð áhrif eru það sem hlýst af sérhagsmunagæslunni, sem og slæm fyrstu kynni erlendra gesta af landinu.
Það sorglega er auðvitað að til eru umhverfisvænni sem og hagkvæmari lausnir – um það eru dæmi víða sem ekki er rými fyrir hér. Landsnet hefur þær ekki. Vill fyrirtækið fá nýjar lausnir í hendur í gegnum fjölmiðla? Málið er flóknara en svo.
E.t.v. er háspennulínan sem liggur niður í Reyðarfjörð dæmi um nýsköpunina sem forstjórinn er að tala um. Eða vinningstillagan í arkitektasamkeppninni 2008 – hreinræktað stálgrindarmastur. Er ástandið á Hellisheiði að mati forstjórans merki um framsýnina sem hann telur Landsnet framfylgja? Ryðguð stálgrindarmöstur í umvörpum – bæði ný og gömul. Þetta er það sem Landsnet getur státað sig af – í reynd afrakstur fákeppni og hvergi merki um framsýni að finna. Suðvesturlínur er enn eitt dæmið um úrelda hugsun og fullkominn skort á framsýni.
Hvernig getur forstjóri Landsnets fullyrt svona stoltur að hann sé með hagkvæmustu lausnina? Á hverju byggir það? Útreikningar undirritaðs sýna allt annað.
Skoðun

Heimur skorts eða gnægða?
Þorvaldur Víðisson skrifar

Vígvellir barna eru víða
Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar

Narsissismi í hnotskurn
Hallgerður Ljósynja Hauksdóttir skrifar

Palestína í Eurovision
Sigurður Loftur Thorlacius skrifar

Ferðaþjónustan er burðarás í íslensku efnahagslífi
Þórir Garðarsson skrifar

Hversu lítill fiskur yrðum við?
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Þjóðin vill eitt, Kristrún annað
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Lélegir íslenskir læknar...eru ekki til!
Steinunn Þórðardóttir skrifar

Þjóðin sem selur sjálfri sér: Vangaveltur um sölu Íslandsbanka
Guðjón Heiðar Pálsson skrifar

Hagsmunir heildarinnar - Þriðji kafli: Skálmöld
Hannes Örn Blandon skrifar

Valkyrjurnar verða að losa okkur við Rapyd
Björn B. Björnsson skrifar

Söngur Ísraels og RÚV
Ingólfur Gíslason. skrifar

Ófullnægjandi vinnubrögð ófaglærðra „iðnaðarmanna“: Áhrif á húskaupendur
Kristinn R Guðlaugsson skrifar

Uppiskroppa með umræðuefni í málþófi? Talið um Gaza!
Viðar Eggertsson skrifar

Kærleikurinn pikkaði í mig
Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar

Friðun Grafarvogs
Stefán Jón Hafstein skrifar

Torfærur, hossur og hristingar!
Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir skrifar

NÓG ER NÓG – Heilbrigðiskerfið er í neyðarástandi
Ásthildur Kristín Björnsdóttir skrifar

Við munum aldrei fela okkur aftur
Kári Garðarsson skrifar

Er Kópavogsbær vel rekinn?
Bergljót Kristinsdóttir skrifar

Oft er forræðishyggja hjá fjölskyldum og á heimilum fatlaðs fólks
Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar

Um sjónarhorn og sannleika
Líf Magneudóttir skrifar

Lýðræðið er farið – er of seint að snúa við?
Einar G. Harðarson skrifar

Er gagnlegt að kunna að forrita á tímum gervigreindar?
Henning Arnór Úlfarsson skrifar

Málþóf og/eða lýðræði?
Elín Íris Fanndal skrifar

Umdeildasti fríverslunarsamningur sögunnar?
Arnar Þór Ingólfsson skrifar

Ísafjarðarbær í Bestu deild
Sigríður Júlía Brynleifsdóttir,Gylfi Ólafsson skrifar

Þjóðarmorð í beinni
Arnar Eggert Thoroddsen skrifar