Segir líkur á að kvika sé á leið upp í setlög í Eyjafjarðarál Kristján Már Unnarsson skrifar 23. október 2012 21:01 Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur telur þykkt sjávarset hindra neðansjávargos.
Haraldur Sigurðsson, eldfjallafræðingur í Stykkishólmi, telur miklar líkur á að kvika sé að brjótast upp í setlög á botni Eyjafjarðaáls. Kvikan komist þó ekki upp á hafsbotninn til að gjósa neðansjávar heldur myndi kvikuinnskot inni í setinu. Þetta kemur fram í grein sem Haraldur birtir í dag á eldfjallabloggi sínu um jarðskjálftahrinuna norðanlands. Haraldur segir að dýpi álsins, þar sem skjálftarnir komi fram, sé um 500 metrar. Þar undir sé um þriggja til fjögurra kílómetra þykkt lag af sjávarseti: „Eyjafjarðaráll er sigdalur, sem er að gliðna vegna flekahreyfinga. Flekamótin ná alla leið niður í möttul og basaltkvika mun því rísa upp um flekamótin og inn í setlögin." Haraldur lýsir í grein sinni fyrirbæri sem jarðfræðingar kalli „density filter". Það hafi þær afleiðingar að eðlisþung basaltkvika komist ekki upp á hafsbotninn til að gjósa neðansjávar, heldur myndi kvikuinnskot inni í setinu. Slíkt kvikuinnskot gerist hvað eftir annað á flekamótunum og myndi þá einskonar jólatré inni í setinu. „Er þetta að gerast undir Eyjafjarðarál í dag?" spyr Haraldur. „Enginn veit, en líkurnar eru miklar, að mínu áliti." Hann lýkur grein sinni á þessum orðum: „Ég tek eftir því að órói hefur verið nokkur á jarðskjálftamælum í grennd við Eyjafjarðarál. Er það vísbending um kvikuhreyfingu? Ég veit ekki."
Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ Sjá meira