Kröfu verjenda í Vafningsmálinu hafnað 27. júní 2012 15:00
Kröfu verjenda Lárusar Welding og Guðmundar Hjaltasonar, sem ákærðir eru í Vafningsmálinu, um að greinargerð embættis sérstaks saksóknara um innanhúsrannsókn á rannsakendum málsins verði ekki tekin gild, var hafnað í Héraðsdómi Reykjavíkur. Símon Sigvaldason dómari kvað upp úrskurð þess efnis klukkan 14:00 í dag. Hólmsteinn Gauti Sigurðsson, saksóknari, lagði fram greinargerð við fyrirtöku frávísunarhluta málsins í morgun, þar sem meðal annars kom fram að innanhúsrannsókn embættis sérstaks saksóknara bendi til þess að þrátt fyrir að rannsakendurnir Guðmundur Haukur Gunnarsson og Jón Óttar Ólafsson, sem kærðir hafa verið til ríkissaksóknara vegna meintra brota á þagnarskyldu í starfi sínu, hafi unnið við rannsókn málsins þá hafi það ekki grafið undan málinu. Verjendurnir, Þórður Bogason og Óttar Pálsson, mótmæltu þessu og töldu ekki að greinargerðin ætti erindi í málið. Guðmundur Haukur og Jón Óttar voru kærðir vegna gruns um að þeir hefðu unnið fyrir þrotabú Milestone samhliða störfum fyrir sérstakan saksóknara en fram hefur komið að þeir þáðu meðal annars 30 milljónir króna vegna starfa sinn fyrir þrotabúið. Málflutningur vegna kröfu ákærðu um frávísun fer fram í ágúst, en að sögn Þórðar Bogasonar, lögmanns Guðmundar, eru yfirvafandi líkur á því að úrskurðurinn verði kærður til Hæstaréttar.
Vafningsmálið Dómsmál Mest lesið Segðu Já í vinnunni og það strax! Atvinnulíf Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Viðskipti innlent Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Viðskipti innlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Viðskipti erlent Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Myndir frá Akureyri þar sem Bylgjan var í beinni Lífið samstarf Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Sjá meira