Þorgerður Borgarlistamaður Reykjavíkur 17. júní 2012 16:00 Þorgerður Ingólfsdóttir kórstjóri var í dag útnefnd Borgarlistamaður Reykjavíkur árið 2012. mynd/anna fjóla
Þorgerður Ingólfsdóttir kórstjóri var í dag útnefnd Borgarlistamaður Reykjavíkur árið 2012. Útnefningin fór fram í Höfða þar sem Jón Gnarr borgarstjóri veitti listamanninum að þessu tilefni ágrafinn stein, heiðursskjal og viðurkenningarfé. Menningar- og ferðamálaráð útnefnir árlega borgarlistamann og gerði Magnús Þór Gylfason grein fyrir vali ráðsins. Í lok athafnar söng Hamrahlíðakórinn undir stjórn Þorgerðar í Höfða. „Reykjavíkurborg heiðrar nú Þorgerði fyrir ómetanlegt frumkvöðlastarf í tónlist og menningaruppeldi. Þorgerður stofnaði Kór Menntaskólans við Hamrahlíð árið 1967 og árið 1982 framhaldskór hans, Hamrahlíðarkórinn. Undir forystu Þorgerðar hafa kórarnir tveir unnið hvern sigurinn af öðrum hvort sem er á tónleikum innanlands eða á alþjóðlegum tónlistarhátíðum víða um heim. Á þriðja þúsund ungmenna hafa hlotið tónlistaruppeldi í Hamrahlíðarkórunum hjá Þorgerði, meðal þeirra eru margir af fremstu tónlistarmönnum þjóðarinnar. Hamrahlíðarkórarnir hafa verið mjög virkir í íslensku samfélagi, haldið fjöldann allan af tónleikum um allt land við mjög fjölbreytta viðburði. Þeir hafa undir stjórn Þorgerðar haldið tónleika í 23 löndum, komið fram á mörgum helstu kórahátíðum heims í Evrópu, Norður Ameríku og Asíu og hlotið margvísleg verðlaun. Fjölmörg tónskáld, íslensk og erlend, hafa samið verk fyrir Þorgerði og kórana hennar auk allra þeirra raddsetninga, ljóðaþýðinga og söngtexta sem samin hafa verið fyrir kórana. Hamrahlíðarkórarnir undir stjórn Þorgerðar hafa gert ótal margar upptökur fyrir útvarp og sjónvarp innan lands sem utan og þrjár hljómplötur og átta geisladiskar hafa komið út með söng kóranna, hlotið viðurkenningar og lofsamlega dóma. Á þessu ári kemur út nýr geisladiskur með verkum Huga Guðmundssonar í flutningi Hamrahlíðarkórsins. Þorgerður stundaði alhliða tónlistarnám frá sjö ára aldri. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1963, tónmenntakennaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík 1965 og nam í kjölfarið tónvísindi og kórstjórn á meistarastigi við University of Illinois í Bandaríkjunum. Formlegt tónlistarnám hefur hún einnig stundað í Austurríki og Bretlandi og nam að auki guðfræði um tíma við Háskóla Íslands. Auk þess að stjórna Hamrahlíðakórunum kenndi Þorgerður við Tónlistarskólann í Reykjavík í tæp þrjátíu ár. Hún sá um kynningar á fjölskyldu- og skólatónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í sjö ár og var framkvæmdastjóri Zukofsky-tónlistarnámskeiðanna fyrstu árin. Hún var fulltrúi tónlistarmanna í stjórn Bandalags íslenskra listamanna í mörg ár og fulltrúi Íslands á sviði tónlistar í Kaleidoscope-verkefni Evrópusambandsins, í Sleipni og í norrænu tónlistarnefndinni, NOMUS. Þorgerður hefur tekið mjög virkan þátt í alþjóðlegu samstarfi á sviði tónlistar og m.a. setið í dómnefndum í ýmsum alþjóðlegum tónlistarkeppnum. Hún er einn af stofnendum Alþjóðlega kórasambandins og á sæti í ráðgjafanefnd Heimsleikanna í kórtónlist. Þorgerður var aðalstjórnandi æskukórsins Radda Evrópu sem var viðamesta samstarfsverkefni menningarborga Evrópu árið 2000, þar sem menningarborgirnar níu lögðu til kór og söngvara frá hverri borg sem sameinuðust í Raddir Evrópu og héldu tónleika um Evrópu þvera og endilanga. Þorgerður stjórnaði jafnframt Röddum Íslands, kór 150 ungra kórsöngvara af öllu landinu, sem komu fram á opnunarhátíð Hörpu 13. maí á liðnu ári. Þorgerður hefur hlotið margvíslega viðurkenningu fyrir störf sín og list, s.s. Bjartsýnisverðlaun Bröstes, menningarverðlaun DV, heiðursverðlaun Samfélagsverðlauna Fréttablaðsins, riddarakross Hinnar íslensku fálkaorðu og stórriddarakross Hinnar konunglegu norsku heiðursorðu," segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.
Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira