Innlent

Íslensk ættleiðing í fjársvelti

Hugrún J. Halldórsdóttir skrifar
Svo gæti farið að eina ættleiðingafélag Íslands hætti að taka við umsóknum á þessu ári vegna fjárskorts. Formaður segir félagið þurfa áttatíu milljónir aukalega frá ríkinu til að geta haldið rekstrinum áfram.

Halli hefur verið á rekstri íslenskrar ættleiðingar undanfarin ár og því hefur ekki verið unnt að sinna öllum þeim skyldum sem stjórnvöld hafa tekið á sig með því að undirgangast alþjóðlega samninga, til að mynda að bjóða læknisþjónustu og sinna þjónustu eftir ættleiðingar.

„Það er samdóma álit okkar og fulltrúa innanríkisráðuneytisins að þessi verkefni kosti 62 milljónir á ári og við erum einungis að fá brot af þeirri upphæð," segir Hörður Svavarsson, formaður Íslenskrar ættleiðingar.

Félaginu eru ætlaðar 9,2 milljónir á fjárlögum þessa árs og segir Hörður að útlit sé fyrir að ganga þurfi á varasjóði þess. „Það er erfitt að segja hvað tekur við en þegar sjóðirnir klárast þá kemur auðvitað að því að það verður að hætta að taka við umsóknum um ættleiðingar og það getur vel verið að það gerist þegar líður á árið," segir Hörður.

Félagið er eina íslenska ættleiðingarfélagið og ef það leggur upp laupana geta ættleiðingar í raun ekki farið fram hér á landi. „Það er augljóst því það er bannað samkvæmt lögum að ættleiða nema með milligöngu ættleiðingarfélags," segir Hörður.

100 fjölskyldur eru á biðlista eftir ættleiðingu í dag en Hörður gerir ráð fyrir að umsóknum þeirra verði fylgt eftir ef allt fer á versta veg. Staðan verður rædd á fundi félagsins í kvöld en mál þess var tekið fyrir á ríkisstjórnarfundi þann 9.mars síðastliðinn.

„Við höfum engar fréttir af þeim fundi. Þannig að við gerum ráð fyrir því að það sé ekki pólitískur vilji til þess að breyta aðstæðum félagsins," segir Hörður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×