
Höfnum hækkun bílastæðagjalda
Það er rétt að taka það strax fram að ég hef setið báðum megin borðsins í þessu máli því nú er ég flutt úr miðbænum og því búin að taka að mér hlutverk gests stöðumælasvæðisins. Þegar ég fer að heimsækja móður mína, sem gerist nánast daglega, þá verð ég að borga í stöðumæli ellegar sitja uppi með himinháar sektir. Í mínu tilfelli gerir þetta það að verkum að ég reyni að koma ekki nema þegar stöðumælarnir eru í „fríi“, sem er eftir kl. 18 á virkum dögum.
Þetta er það sem kaupmenn miðbæjarins þurfa líka að sætta sig við. Eðlilega vill enginn hafa stöðumæla fyrir utan verslunina sína en ef það er það sem þarf til þess að stæðin séu ekki í notkun allan daginn af öðrum en viðskiptavinum þá eru kostir þeirra fleiri en gallarnir.
Hlutverk gjaldskyldra stæðaSýn mín á gjaldskyld stæði er því þessi; gjaldskyldan er í þágu okkar allra. Ég hef aldrei litið þannig á það að ég sé að borga fyrir það eitt að fá að leggja bílnum mínum þegar ég set pening í stöðumæli enda væri það fráleitt að það kostaði að leggja í einu hverfi en ekki öðru. Ég hef litið á það þannig að þetta væri allt í þágu íbúa svæðisins, af ofangreindum ástæðum, og ekki síður þeirra sem reka fyrirtæki þar. Að leggja í þessi stæði á ekki að vera mikill kostnaður nema að þú sért í því allan daginn. Þeir sem þurfa að stoppa á þessum gjaldskyldu stæðum í lengri tíma hafa þess kost að leggja í bílastæðahús sem er mun hagstæðara. Reyndar finnst mér að það ætti að vera frítt fyrsta klukkutímann til þess að fleiri myndu nota húsin en það er kannski aðeins út fyrir efnið að svo stöddu.
Skert samkeppnishæfni verslana svæðisinsStjórn FUF í Reykjavík birti nýlega eftirfarandi ályktun:
Stjórn Félags ungra framsóknarmanna í Reykjavík mótmælir öllum hugmyndum um hækkun bílastæðagjalda í miðborg Reykjavíkur.
Þessi aðgerð mun fæla fólk frá hverfinu og veikja samkeppnishæfni verslana í miðborginni. Ungir framsóknarmenn í Reykjavík minna á það að stöðumælarnir eru nú þegar að þjóna tilgangi sínum sem er að rýma stæðin reglulega og tökum við því undir með verslunareigendum að hækkunin sé fullkomlega óþörf.
Tilefni ályktunarinnar er að nú stendur til að hækka gjald fyrir bílastæðin úr 150 kr. á klst. í 250 kr. og lengja gjaldskyldan tíma. Tillögunni hefur nú þegar verið beint til borgarráðs og ef hún verður staðfest er áformað að þetta taki gildi 15. apríl næstkomandi. Að nota stöðumælana til þess að auka innkomu borgarinnar þegar þrengir að er augljóslega á skjön við þær hugmyndir sem ég hef um notagildi mælanna. Þeir verslunareigendur sem þegar hafa tjáð sig um málið eru sammála um að flæðið í og úr stæðunum er fullkomlega ásættanlegt í núverandi ástandi og sem fyrrverandi íbúi og tíður gestur svæðisins er ég því sammála.
Úr tilkynningu frá Reykjavíkurborg er þessi hækkun m.a. réttlætt með því að skýra frá því að þessi gjöld séu mun hærri í borgum skandinavískra frænda okkar. Þetta þykir mér þunn rök í ljósi stöðu margra verslana miðborgarinnar okkar. Við vitum öll, sem kærum okkur um að vita, að það hefur verið mikið vandamál að fá Íslendinga til þess að klæða sig í gallann yfir vetrarmánuðina og nota Laugaveginn til jafns við verslunarmiðstöðvarnar. Illa ígrundaðar og illa tímasettar hækkanir gætu fælt þá fáu sem þó gera það frá sem myndi fljótt skila sér út í verðlagið og setja af stað dómínóáhrif í gegnum veikar stoðir samfélagsins.
Skoðun

Fæðing Ísraels - Líkum misþyrmt
BIrgir Dýrfjörð skrifar

Við eigum allt. Af hverju finnst okkur samt vanta eitthvað?
Valentina Klaas skrifar

Um spretthóp og lestrarkennslu. Hvatning til mennta- og barnamálaráðherra um faglega starfshætti
Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar

Tíðaheilbrigði er lykilatriði í jafnrétti kynjanna
Berit Mueller skrifar

Þjóðarmorð – frá orðfræðilegu sjónarmiði
Eiríkur Rögnvaldsson skrifar

Borgarlína, barnleysi og bíllaus lífstíll – hentar það Kópavogi?
Einar Jóhannes Guðnason skrifar

Þakkir til starfsfólk Janusar
Sigrún Ósk Bergmann skrifar

Mun gervigreindin senda konur heim?
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Frá, frá, frá. Fúsa liggur á
Eiríkur Hjálmarsson skrifar

Nokkur orð um stöðuna
Dögg Þrastardóttir skrifar

Kynbundinn munur í tekjum á efri árum
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,Steinunn Bragadóttir skrifar

#blessmeta – þriðja grein
Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skrifar

Hvernig tryggir þú stærstu fjárfestingu lífins?
Berglind Halla Elíasdóttir skrifar

Ritunarramminn - verkfæri fyrir kennara!
Katrín Ósk Þráinsdóttir skrifar

Feluleikur Þorgerðar Katrínar
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Ráðalaus ráðherra
Högni Elfar Gylfason skrifar

Spólum til baka
Snævar Ingi Sveinsson skrifar

Sögulegur dómur Hæstaréttar – staðfestir sjálfstæði Alþingis
Erna Bjarnadóttir skrifar

Að vera fatlaður á Íslandi er full vinna
Birna Ösp Traustadóttir skrifar

Sæluríkið Ísland
Einar Helgason skrifar

Áskorun til Alþingis: Tryggið almannahagsmuni - afnemið samkeppnisundanþágu afurðastöðvanna
Benedikt S. Benediktsson,Breki Karlsson,Halla Gunnarsdóttir,Ólafur Stephensen skrifar

Stormurinn gegn stóðhryssunni
Hallgerður Ljósynja Hauksdóttir skrifar

Kallið þið þetta fjölbreytni?
Hermann Borgar Jakobsson skrifar

Til varnar Eyjafjöllum - og Íslandi öllu
Pétur Jónasson skrifar

Réttlætið sem refsar Jóni
Hjálmar Vilhjálmsson skrifar

Guðmundur Hrafn Arngrímsson er maður sem hefur aldrei rúllað sexum
Kristján Blöndal skrifar

Eitt eilífðar smáblóm með titrandi tár
Katrín Matthíasdóttir skrifar

Á uppgjör frá TR að koma eldri borgurum á óvart?
Björn Snæbjörnsson skrifar

Bæjarstjórinn í Kópavogi hendir fyrir vagninn
Gunnar Gylfason skrifar