Ferðamannastaðir sumir við þolmörk 29. mars 2012 04:00 Kannanir sýna að á vinsælum ferðamannastöðum telji hluti ferðamanna að fjöldi ferðamanna á staðnum rýri upplifun þeirra.Fréttablaðið/Pjetur
Ójöfn dreifing ferðamanna veldur miklu álagi á umhverfi auk þess sem upplifun ferðamanna skerðist ef þeir eru of margir. Þetta er meðal þess sem kom fram í máli Önnu Dóru Sæþórsdóttur, dósents í ferðamálafræði við Háskóla Íslands, á aðalfundi Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF) í síðustu viku. Anna Dóra bendir á að rúmlega helmingur erlendra ferðamanna sæki landið heim á sumrin og flestir heimsæki sömu staðina, þar á meðal Þingvelli, Gullfoss, Geysi og Mývatnssveit. Hún vísar til nýlegra kannana sem sýni að 40 prósentum ferðamanna við Hrafntinnusker þyki óþægilega mikið af ferðafólki á svæðinu og sama eigi við um 30 prósent þeirra sem heimsæki Landmannalaugar. Anna Dóra segir ljóst að ákveðnir staðir á suðurhálendinu séu orðnir mjög ásettir vegna fjölbreyttrar nýtingar, og fram undan sé samkeppni um hálendið sem auðlind. Samkvæmt upplýsingum frá SAF hefur erlendum ferðamönnum á Íslandi fjölgað að meðaltali um 7,4 prósent síðustu 30 árin, frá um 72 þúsundum árið 1981 í um 566 þúsund í fyrra sem er fjölgun um 686 prósent. Árni Gunnarsson, formaður SAF, lýsti í ræðu sinni á fundinum einnig áhyggjum af þróuninni. Hann velti upp spurningunni um hvort gullkálfur núverandi velgengni í ferðaiðnaði ætti sér raunverulega framtíð. „Hvort kálfurinn verði að afurðamikilli mjólkurkú til frambúðar eða hvort hann breytist í geldkú vegna vanrækslu í búskapnum? Erum við að ganga nærri þeim gæðum sem við byggjum greinina á og er öruggt að stórbrotin náttúra landsins sem laðar að sér allan þennan mikla fjölda ferðamanna þoli enn meira álag á komandi árum án þess að láta á sjá?“ spurðu hann gesti fundarins. Árni sagði ljóst að dreifa þyrfti komum erlendra ferðamanna jafnar yfir árið og tryggja að þjónusta við þá uppfylli væntingar. Í þriðja lagi sagði Árni að stjórnvöld þyrftu að skapa geiranum ásættanlegt starfsumhverfi. Hann gagnrýndi bæði skattheimtu af eldsneyti og fjármögnun Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða. „Það virðist alveg gleymast að með auknum fjölda ferðamanna aukast tekjur ríkisins án breytinga á skattkerfinu,“ sagði hann og benti á að beinar skattatekjur ríkisins af aukningu í komum erlendra ferðamanna til landsins í fyrra nemi um tveimur milljörðum króna. Og þá væru ótaldar óbeinar tekjur ríkisins. olikr@frettabladid.is
Mest lesið Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Innlent Nauðlenti vegna sprengjuhótunar Erlent Hrákinn endaði í andliti og auga Innlent Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Erlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Innlent Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Fleiri fréttir Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Sjá meira