Jæja, Sighvatur Jakobína Ingunn Ólafsdóttir skrifar 6. mars 2012 06:00 Ég verð að játa að það fyllir mig andagift að lesa skrif þín. Þú talar undir rós í pistli 3. mars og um Hana sem þú nafngreinir ekki en berð órökstuddum sökum um heimsku (undir rós). Ég geri ráð fyrir að þessi kona sé ein af þeim sem berst ötullega fyrir hagsmunum almennings. Ég ætla að svara þér á sama hátt og segja þér (undir rós) að það fer í taugarnar á mér þegar gamall karlfauskur sem hefur verið á spena hjá hinu opinbera í tugi ára og væntanlega keypt hús sitt með styrk frá sparifjáreigendum gengur fram á sviðið og gagnrýnir samfélagshópa sem hann sjálfur hefur átt þátt í að gera að öreigum. Auðvitað er ég ekki að vísa til þín enda efast ég ekki um að þú hafir þurft að strita í sveita þíns andlitis og í hvert skipti sem þú hefur fengið starf hefur þú verið valinn úr hópi fjölda umsækjenda á grundvelli menntunar og hæfni. Í fyrri skrifum þínum stillir þú mér inn í fílabeinsturn menntaelítunnar á þeirri forsendu að ég hef lokið við að skrifa doktorsritgerð. Þér að segja, Sighvatur, þá hef ég unnið í frystihúsi, ég hef unnið við umönnunarstörf, þjónað á matsölustað og aflað mér minnar grunnmenntunar sem einstæð móðir tveggja barna erlendis (á verðtryggðum lánum). Ég hef aldrei fengið starf í gegn um klíkuskap. Ég hef hins vegar þurft að sætta mig við að núverandi forsætisráðherra tæki karlmann fram yfir mig í starf sem hafði í árum talið helming þeirrar menntunar sem ég hef og enga stjórnunarreynslu ólíkt mér. Við sem búum í heimi valdamisvægis og ruddalegra mannréttindabrota þurfum einfaldlega að sætta okkur við það að þeir óverðugu hljóti gullmolana á meðan öðrum er gert að sleikja mylsnuna upp úr gólfinu. Þú talar um að láta börnin borga. Börnunum hefur þegar verið sendur reikningurinn. Það gerði núverandi ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur árið 2009 þegar hún tók lán upp á nálægt þúsund milljarða til þess að fylla gjaldeyrisvarasjóðinn sem útrásarvíkingar höfðu tæmt árið áður. Skömmu eftir hrun gengu sögur um það hvernig Davíð Oddsson hefði sett hundruð milljarða inn í Kaupþing skömmu fyrir hrun og að skömmu síðar hefði allur gjaldeyririnn horfið af landi brott. Ég efa ekki að þú sért í nokkrum vandræðum með að ganga úr skugga um þetta með lestri gagna á síðu Seðlabankans frá umræddum tíma. Þetta mál hefur verið rækilega þaggað niður eftir hrun með dyggri þjónustu núverandi ríkisstjórnar. Einnig var gengi krónunnar híft upp í skamman tíma nokkrum dögum eftir hrun og það hefur ekki verið afhjúpað hverjir notuðu þessa daga til þess að koma fjármagni úr landi. En reikningurinn hefur, eins og fyrr segir, verið sendur börnunum. Gjaldeyrisvarasjóðurinn sem tekinn er að láni þjónar því hlutverki að vekja traust á krónunni, þ.e halda uppi gengi hennar gagnvart erlendum gjaldmiðlum. Þetta skilar lægra vöruverði á innfluttum vörum. Hinir efnameiri, spurning hvort þú tilheyrir þeim hópi, sem kaupa gjarnan innfluttar vörur og ferðast til útlanda eru því að gera það á kosnað barna okkar. Því einhver verður að endurgreiða höfuðstólinn af erlendum lánum að því marki sem gjaldeyrisvaraforðinn rýrnar. Ég er ein af þeim sem hef gert kröfu um leiðréttingar, ekki bara á skuldastöðu heimilanna heldur einnig á því kerfi sem notað er til þess að færa eignir kerfisbundið af heimilum og yfir á fjármagnseigendur. Þetta kerfi stenst ekki stjórnarskrá. Ég er þó ekki að tala um eigin skuldamál undir rós því að nokkuð langt er síðan ég keypti fasteign síðast. Ég var þó ein af þeim sem lenti í klóm Framsóknarflokksins þegar hann hækkaði fasteignamatið umfram vísitölu án þess að fyrir því væri lagaheimild og þurrkaði þar með út vaxtarbæturnar sem mér bar að fá. Þetta setti áætlanir mínar úr skorðum en ég er varkár í fjármálum, hafði gert áætlanir og reiknaði með að ráðherrar þyrftu að fara að lögum eins og annað fólk. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Sjáðu þig, því lífið liggur við Hlíf Steingrímsdóttir Skoðun Það þarf heilt þorp Björg Magnúsdóttir,Sandra Hlín Guðmundsdóttir Skoðun Golfið lækning við hálfónýtum maga og þörmum? Gunnar Salvarsson Skoðun Þegar fyrirsögnin finnur orsökina á undan rannsókninni Elísabet Reynisdóttir Skoðun Fleiri leiðir til Evrópusamstarfs Erna Bjarnadóttir Skoðun September án niðurstöðu Halla Gunnarsdóttir,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson,Gunnar Sigurðsson,Eiður Stefánsson,Andri Reyr Haraldsson,Jakob Tryggvason Skoðun Erum við tilbúin fyrir hálfs metra hækkun sjávar? Eyþór Eðvarðsson Skoðun Ró á vinnumarkaði krefst skýrra leikreglna Halldóra Sigr. Sveinsdóttir Skoðun „Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot Skoðun Skoðun Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Skoðun Frá styrkjum til stefnumótunar Hrönn Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Boltinn er hjá ykkur Matthías Bjarnason skrifar Skoðun Golfið lækning við hálfónýtum maga og þörmum? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Þegar fyrirsögnin finnur orsökina á undan rannsókninni Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Fleiri leiðir til Evrópusamstarfs Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Tiplað inn í framtíð ferðaþjónustunnar Inga Hlín Pálsdóttir skrifar Skoðun Ró á vinnumarkaði krefst skýrra leikreglna Halldóra Sigr. Sveinsdóttir skrifar Skoðun Atvinna, ábyrg nýting og hagsmunir nærsamfélagsins Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Hættum að endurræsa menntakerfið, byrjum að halda áfram Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Það þarf heilt þorp Björg Magnúsdóttir,Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson skrifar Skoðun Huldufólkið Rannveig Haraldsdóttir skrifar Skoðun September án niðurstöðu Halla Gunnarsdóttir,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson,Gunnar Sigurðsson,Eiður Stefánsson,Andri Reyr Haraldsson,Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Sjáðu þig, því lífið liggur við Hlíf Steingrímsdóttir skrifar Skoðun Taktík Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Hvar værum við stödd ef rafbílavæðingin hefði ekki átt sér stað? Kristín Björk Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heilarotnun og hugræktarstöðvar á tímum gervigreindar Þórhallur Magnússon skrifar Skoðun Pitsuostur, alþjóðaviðskipti og almannahagur Ólafur Stephensen skrifar Skoðun „Það er enn verið að drepa börn“ Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Miklum afla landað utan kvóta Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Dánaraðstoð: sjálfræði, mannréttindi og mörk samfélagsins Steinar Harðarson skrifar Skoðun Erum við tilbúin fyrir hálfs metra hækkun sjávar? Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Við erum öll orðin verkkaupar Anna Kristín Hálfdánardóttir skrifar Skoðun „Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot skrifar Skoðun Ævilöng túlkaþjónusta á kostnað útsvarsgreiðenda Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Beislið sem hnýtir sig sjálft Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir skrifar Sjá meira
September án niðurstöðu Halla Gunnarsdóttir,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson,Gunnar Sigurðsson,Eiður Stefánsson,Andri Reyr Haraldsson,Jakob Tryggvason Skoðun
„Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot Skoðun
Skoðun September án niðurstöðu Halla Gunnarsdóttir,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson,Gunnar Sigurðsson,Eiður Stefánsson,Andri Reyr Haraldsson,Jakob Tryggvason skrifar
Skoðun Hvar værum við stödd ef rafbílavæðingin hefði ekki átt sér stað? Kristín Björk Bjarnadóttir skrifar
Skoðun „Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot skrifar
Skoðun Ævilöng túlkaþjónusta á kostnað útsvarsgreiðenda Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar
Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar
September án niðurstöðu Halla Gunnarsdóttir,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson,Gunnar Sigurðsson,Eiður Stefánsson,Andri Reyr Haraldsson,Jakob Tryggvason Skoðun
„Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot Skoðun