60 prósent ekki andvíg Kanadadollar 12. nóvember 2011 19:00 Kanadískur dollari
Rúm sextíuprósent Íslendinga eru ekki andvíg upptöku Kanadadollara hér á landi samkvæmt könnun sem unnin var af Capacent Gallup í sumar. Karlar og eldra fólk eru almennt jákvæðari gagnvart upptöku gjaldmiðilsins. Markmiðið með könnuninni var að meta afstöðu þjóðarinnar til einhliða upptöku annars gjaldmiðils, en þátttakendur voru spurðir hvort þeir væru hlynntir eða andvígir því að kasta krónunni fyrir Kanadadollara á næstu 6 til 18 mánuðum. 36% Íslendinga eru hlynnt upptökunni, 38% á móti og 26% hvorki né. Karlar eru jákvæðari en konur en rúmlega 40% þeirra vilja skipta krónunni út fyrir dollarann. Tæp 30% segja hvorki né og 30% eru hugmyndinni andvíg. Þegar litið er til kvenna líst tæplega 30% vel á upptökuna, rúmlega 20% svöruðu hvorki né, sem þýðir að helmingur Íslenskra kvenna er á móti því að Kanadadollarinn verði tekinn upp hér á landi. Yngra fólk hefur mun neikvæðara viðhorf til upptökunnar. Einungis 16% á aldrinum 16 til 24 ára eru henni hlynnt, rúmur helmingur er á móti og rúm 30% svöruðu hvorki né. Prósentufjöldi stuðningsmanna upptöku dollarans er svo svipaður hjá Íslendingum á aldrinum 25 til 54 ára, eða rúm 40%. Tæp 30% segjast hvorki hlynnt né andvíg og rúm 30% eru á móti. Íslendingar sem eru hálfsextugir og eldri taka dollaranum ekki alveg jafn opnum örmum, tæp 40% eru hlynnt upptökunni, 40% eru andvíg og 20% svöruðu hvorki né. Lítill munur er á skoðunum fólks eftir búsetu, tekjum og menntun. Könnunin, sem var framkvæmd í júní á þessu ári, náði til rúmlega 1300 manns og var svarhlutfallið tæp 60%.
Mest lesið Icelandair segir upp 57 flugmönnum Viðskipti innlent „Krakkar sem gistu hjá okkur vissu ekki hvað var að gerast!“ Atvinnulíf Hinn almenni borgari þurfi ekki að dæla í sig steinefnum Neytendur Brimborg lækkar verð á rafbílnum Volvo EX30 Samstarf Blár Opal seldist á fimmtán þúsund Neytendur „Sársaukafullt að sjá“ IKEA vasa dýrari í Góða hirðinum Neytendur MAST varar við ólöglegu innihaldsefni í fæðubótarefni Neytendur Festi fær að kaupa Lyfju Neytendur Danir höndla ekki kóresku pakkanúðlurnar Viðskipti erlent Leiðtogakulnun: Þegar yfirmaðurinn er alveg búinn á því Atvinnulíf Fleiri fréttir Icelandair segir upp 57 flugmönnum Húsnæði B5 auglýst til leigu enn og aftur Selja höfuðstöðvarnar sem voru rýmdar vegna myglu „Betur borgandi ferðamenn“ enginn bjargvættur ferðaþjónustunnar Vetrarþjónustan þungur baggi á borginni Gerður Björt nýr framkvæmdastjóri rekstrarþjónustu Wise Kristján Andrésson gengur til liðs við Arion banka Running Tide segir upp öllu starfsfólki á Íslandi Stefnt á að virkjun Hvalár geti hafist eftir tvö ár Bjór, bingó og bíó í Vinabæ á ný Frederiksen víkur fyrir Bird Áhöfnum tveggja skipa Þorbjarnar sagt upp Sigurður Tómasson til liðs við Origo Hrefna og Unnur til Novum Easyjet flýgur frá Akureyri til Manchester í vetur 500 manns sóttu um störf hjá OCHE Reykjavík Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Skuldar þrotabúi föður síns fleiri milljarða Fleiri farþegar og betri nýting Gengu frá 135 milljarða samningi um endurfjármögnun skulda Fjárfesta fyrir þrjá milljarða í Reykjanesbæ og Hafnarfirði Ein og hálf milljón farþega á fyrstu fimm mánuðum ársins Ingibjörg Ösp yfir nýrri rekstrarráðgjöf Expectus Þrír nýir stjórnendur hjá Festi „Að fara í slag við þessa risa er nánast ómögulegt“ Fjórir sérfræðingar til liðs við Helix Vilhjálmur Hilmarsson nýr hagfræðingur Visku Heimtu hlutinn úr helju og verða stærstu einkafjárfestarnir Varar við þenslu á byggingamarkaði Ráðinn tækni- og þróunarstjóri Defend Iceland Sjá meira