Viðskipti innlent

Fasteignaveltan í borginni jókst um 82% milli ára í júní

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu jókst um 67,6% í júní miðað við sama mánuð í fyrra. Veltan á markaðinum jókst hinsvegar um 82,3% milli ára í júní.

Þetta kemur fram á vefsíðu Þjóðskrár Íslands. Þar segir að fjöldi samninga í júní í ár var 372. Heildarvelta nam 10,6 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 28,5 milljónir króna.  Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 7,2 milljörðum kr., viðskipti með eignir í sérbýli 2,9 milljörðum kr. og viðskipti með aðrar eignir 0,5 milljörðum króna.

Þegar júní  er borinn saman við maí s.l. fækkar kaupsamningum um 9,9% og velta minnkar um 13,9%. Í maí var 413 kaupsamningum þinglýst, velta nam 12,3 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 29,8 milljónir króna.

Þegar júní  er borinn saman við júní í fyrra fjölgar kaupsamningum um 67,6% og velta eykst um 82,3%. Í júní í fyrra var 222 kaupsamningum þinglýst, velta nam 5,8 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 26,2 milljónir króna.

Makaskiptasamningar voru 19 í júní  eða 5,4% af öllum samningum. Í maí  voru makaskiptasamningar 32 eða 8% af öllum samningum. Í júní í fyrra voru makaskiptasamningar 36 eða 17,4% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv., að því er segir á vefsíðunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×