Fasteignaveltan í borginni jókst um 82% milli ára í júní 6. júlí 2011 13:01
Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu jókst um 67,6% í júní miðað við sama mánuð í fyrra. Veltan á markaðinum jókst hinsvegar um 82,3% milli ára í júní. Þetta kemur fram á vefsíðu Þjóðskrár Íslands. Þar segir að fjöldi samninga í júní í ár var 372. Heildarvelta nam 10,6 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 28,5 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 7,2 milljörðum kr., viðskipti með eignir í sérbýli 2,9 milljörðum kr. og viðskipti með aðrar eignir 0,5 milljörðum króna. Þegar júní er borinn saman við maí s.l. fækkar kaupsamningum um 9,9% og velta minnkar um 13,9%. Í maí var 413 kaupsamningum þinglýst, velta nam 12,3 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 29,8 milljónir króna. Þegar júní er borinn saman við júní í fyrra fjölgar kaupsamningum um 67,6% og velta eykst um 82,3%. Í júní í fyrra var 222 kaupsamningum þinglýst, velta nam 5,8 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 26,2 milljónir króna. Makaskiptasamningar voru 19 í júní eða 5,4% af öllum samningum. Í maí voru makaskiptasamningar 32 eða 8% af öllum samningum. Í júní í fyrra voru makaskiptasamningar 36 eða 17,4% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði. Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv., að því er segir á vefsíðunni.
Mest lesið Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Viðskipti innlent Sýndu fljúgandi Roadster Viðskipti erlent Fljúga daglega til Boston Viðskipti innlent Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Viðskipti innlent Lokanir, lægðir og samviskubit Atvinnulíf Rafnar fylgir Herði og segir upp Viðskipti innlent „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Viðskipti innlent Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Viðskipti innlent Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Sjá meira