Varfærið mat á eignum til að tryggja stöðugleika í rekstri 16. nóvember 2011 15:55 Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar Glitnis.
Mat á eignum Íslandsbanka, sem hefur verið uppfært um tugi milljarða frá því að bankinn var endurreistur, byggir á ákvörðun um að meta eignirnar með varfærnum hætti til þess að tryggja stöðugleika í rekstri bankans. Þetta kemur fram í athugasemd frá slitastjórn Glitnis vegna umræðu um eignarhald á Íslandsbanka. Athugasemdin frá slitastjórninni er eftirfarandi: „Í tilefni af fréttum undanfarið um að svokallaðir vogunarsjóðir eigi meira en 60% í Íslandsbanka hf. og að þeir njóti meginhluta þeirrar aukningar sem orðið hefur á eignum bankans vill slitastjórn Glitnis árétta eftirfarandi: Með ákvörðun fjármálaeftirlitsins þann 14. október 2008 voru tilteknar eignir og skuldbindingar Glitnis hf. færðar yfir til Nýja Glitnis banka hf. ( nú Íslandsbanka hf.). Um var að ræða eignir þrotabús Glitnis sem áttu að renna til kröfuhafa bankans. Í uppgjöri á milli bankanna tveggja sem fram fór fyrir atbeina stjórnvalda varð niðurstaðan sú að Glitnir eignaðist 95% hlutafjár í Íslandsbanka hf. enda áttu kröfuhafar bankans þá hagsmuni sem fluttir voru yfir til hins nýja banka. Almennir kröfuhafar Glitnis hafa mátt þola stórfellt tap sem áætlað er að nemi 70-75% af upphaflegum lánveitingum þeirra til Glitnis. Við fall bankans og annarra banka hérlendis töpuðust strax stórar fjárhæðir og má rekja hluta af þessu tapi til setningar neyðarlaganna þar sem innstæður voru gerðar að forgangskröfum á kostnað almennra krafna. Við flutning eignanna yfir í nýja bankann var að frumkvæði stjórnvalda, beitt varfærnu mati til að tryggja stöðugleika í rekstri hans og farsæla enduruppbyggingu fjármálakerfisins. Hið varfærna mat myndaði hins vegar stórfellt tap hjá Glitni sem að einhverju leyti er nú að koma til baka við endurmat á eignum Íslandsbanka. Eignauppfærsla hjá Íslandsbanka er því réttmæt eign kröfuhafa Glitnis í samræmi við hlutafjáreign þeirra í bankanum. Rétt er að fram komi að kröfuhafar í Glitni er stór hópur alþjóðlegra og íslenskra fjárfesta, þar með taldir eru einstaklingar, lífeyrissjóðir, fyrirtæki og fjármálastofnanir. Um 70% af kröfum sem lýst var í bú Glitnis eru enn í eigu upphaflegra kröfuhafa. Um 30% krafna hafa skipt um hendur þar á meðal til alþjóðlegra banka og áður nefndra vogunarsjóða. Ekki er hægt með nokkurri vissu að áætla hvaða kröfur skiptu um hendur eftir fall bankans þar til kröfulýsingarfresti lauk, þar sem stór hluta skulda hans voru skuldabréf á markaði. Það er einnig rétt að undirstrika að kröfuhafarnir hafa enga formlega aðkomu að stjórn Glitnis og þaðan af síður hafa þeir aðkomu að stjórn Íslandsbanka. Fjármáleftirlitið setti ströng skilyrði fyrir eignarhlut Glitnis í Íslandsbanka. Sérstakt eignarhaldsfélag, ISB Holding, fer með eignarhlutinn en í stjórn þess félags eru þrír aðilar og skulu tveir þeirra og þar með formaður stjórnar vera óháðir Glitni og kröfuhöfum. Í stjórn Íslandsbanka eru sjö stjórnarmenn einn frá ríkinu, einn tilnefndur af Glitni en fimm eru óháðir Glitni og kröfuhöfum. Ýmis önnur skilyrði voru sett af stjórnvöldum til að tryggja enn frekar sjálfstæði Íslandsbanka og aðskilnað frá Glitni og kröfuhöfum.“
Mest lesið Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Viðskipti innlent Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Viðskipti innlent Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Viðskipti innlent Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Viðskipti innlent Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Samstarf GameStop vill kaupa eBay Viðskipti erlent Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Viðskipti innlent Sólin sest á Guide to Europe Viðskipti innlent Fleiri fréttir Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Sjá meira