Farþegar í Nuuk grétu í flugstöðinni Jónas Margeir Ingólfsson skrifar 5. mars 2011 18:42
Farþegi í flugvélinni sem brotlenti í Nuuk á Grænlandi í gær segir farþegum hafa verið mjög brugðið þegar inn í flugstöðina var komið. Vélin var flutt af flugbrautinni nú síðdegis. Dash átta flugvél Flugfélags Íslands sem brotlenti í Nuuk á Grænlandi í gær er mikið skemmd. Hægri hjólastellið er brotið, hægri hreyfillinn ónýtur og hægri vængendinn skemmdur. Jónas Þór Sigurgeirsson, sem var um borð í flugvélinni þegar hún brotlenti, segir höggið þó ekki hafa verið þungt. Hann segir farþega vélarinnar hafa verið yfirvegaða þegar gengið var frá borði. Jónas segir fólk þó hafa grátið eftir slysið þegar í flugstöðina var komið. Í dag var unnið að því að koma vélinni af slysstað eins og sjá má á þessum myndum. Rannsóknarnefnd flugslysa Danmerkur vinnur nú að rannsókn málsins en hún fer með málið samkvæmt alþjóðlegum samningum. Hin íslenska rannsóknarnefnd flugslysa hefur þó skipað trúnaðarfulltrúa við rannsóknina og tekur hann þátt í rannsókninni ásamt íslenskum ráðgjöfum. Flugvöllurinn í Nuuk var lokaður í allan dag en ekki var talið öruggt nota völlin meðan vélin sat ennþá skemmd utan brautarinnar. Flugfélag Íslands gat því ekki komið annarri flugvél til Grænlands í dag en í samtali við fréttastofu segir Árni Gunnarsson, framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands, að stefnt sé að því að fljúga annarri vél til Grænlands á morgun.
Mest lesið Ferðamaður fannst látinn og þriggja saknað á eyjum Grikklands Erlent Palestínufánar í Mosfellsbæ vekja upp misgóð viðbrögð Innlent Ósammála Hæstarétti og telja brot Brynjars nauðgun Innlent „Þetta var bara eins og hryðjuverk“ Innlent Vitni segir bílinn hafa ekið hratt fram úr sér skömmu fyrir slysið Innlent Hver er þessi 28 ára maður sem gæti orðið forsætisráðherra Frakka? Erlent Efast um viðbrögð frá ráðherrum í ljósi „sjálfsmorðsmissjóns“ VG Innlent Fjallkonan í ár er Ebba Katrín Innlent „Hvernig getur sama fólk snúist svona í skoðunum sínum?“ Innlent Flokkurinn standi ekki lengur með mannréttindum Innlent Fleiri fréttir Borgarstjóri fór fyrstu ferð í nýju parísarhjóli Sextán sæmdir heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu Ósammála Hæstarétti og telja brot Brynjars nauðgun Hvergi betra að búa en á Íslandi Palestínufánar í Mosfellsbæ vekja upp misgóð viðbrögð Efast um viðbrögð frá ráðherrum í ljósi „sjálfsmorðsmissjóns“ VG Skora á Sjúkratryggingar að semja við tvo heimilislækna Flokkurinn standi ekki lengur með mannréttindum Fjallkonan í ár er Ebba Katrín Þjóðhátíðardagur, Arnarlax og úrsögn úr Samfylkingunni Rafmagn er komið á í Mosfellsbæ Eldur kviknaði í iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði „Þetta var bara eins og hryðjuverk“ „Hvernig getur sama fólk snúist svona í skoðunum sínum?“ Sælkerasveppir ræktaðir í gróðrarstöð í Mosfellsdal Óttast að Quang Le hafi samband við þolendur Vitni segir bílinn hafa ekið hratt fram úr sér skömmu fyrir slysið Altjón í tíu búðum Kringlunnar og undirbúningur fyrir þjóðhátíðardaginn Oddviti Garðarbæjarlistans hættir í Samfylkingunni Neita að borga tjón eftir að hafa mokað snjó yfir bíl Stútfull hátíðardagskrá um allt land á 17. júní „Þetta er stórtjón fyrir okkur“ Parísarhjól sprettur upp við höfnina Stefna á að opna Kringluna á þriðjudag Fá ekki fjármagn til að laga Flóttamannaleiðina fyrr en 2028 Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni Það verði „drulluerfitt“ að rífa VG úr lægðinni Jarðaberjarækt í grænum iðngarði í Helguvík Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Sjá meira