Alheimskreppan stefnir efnahagsbata á Íslandi í voða Jón Hákon Halldórsson skrifar 31. ágúst 2011 15:19
Efnahagsbatanum á Íslandi er stefnt í voða vegna óróans á alheimsmarkaði, sagði sendifulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á Íslandi í tilefni af því að samstarfi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og ríkisstjórnar Íslands er formlega lokið. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn segir að meginmarkmið samstarfsins hafi náðst. „Það hefur mikill árangur náðst í efnahagssamstarfinu... sem má þakka því að ríkisstjórnin hefur helgað sig efnahagsáætluninni og þolgæði Íslendinga eftir þessa gríðarlegu kreppu," sagði Julie Kozack, sendifulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, á blaðamannafundi. Hún segir að efnahagslífið á Íslandi sé enn brothætt. Hræringar á mörkuðum ytra hafi ekki snert Ísland enn sem komið er en ef ástandið á alheimsmörkuðum verði enn erfitt muni það koma niður á Íslandi á endanum. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn fagnar ákvörðun Seðlabanka Íslands um að hækka stýrivexti fyrr í þessum mánuði vegna aukinnar verðbólgu. En Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hvetur líka til þess að ýtt verði undir frekari fjárfestingu í landinu. Tafir á fjárfestingaverkefnum kom niður á hagvexti. Þá segir Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn að áfram verði að vinna að því að skera niður fjárlagahallann en verkið sé ekki eins ærið og áður. Hallinn á rekstri ríkissjóðs verði um 4% í ár. Þá verði jafnframt að vinna að því að aflétta gjaldeyrishöftum og viðhalda stöðugleika á fjármálamarkaði. Loksins gangi hraðar að endurskipuleggja skuldir fyrirtækja en áfram verði að vinna að því verkefni. Þá hvetur Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn íslenska eftirlitsaðila til þess að veita bönkunum nægjanlegt aðhald til að þeir geti tekist á við óvænta atburði í efnahagslífinu.
Mest lesið Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Viðskipti erlent Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum Viðskipti innlent Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés Viðskipti erlent „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Fleiri fréttir Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Sjá meira