Segir mikið í húfi á loftslagsráðstefnu 28. nóvember 2011 01:00 Baráttufólk minnir á mikilvægi loftslagsráðstefnunnar í Suður-Afríku.nordicphotos/AFP
Christiana Figueres, yfirmaður loftslagsstofnunar Sameinuðu þjóðanna, hvetur fulltrúa á loftslagsráðstefnunni í Suður-Afríku til þess að taka ábyrga afstöðu og komast að samkomulagi um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Ráðstefnan er sú sautjánda í röðinni frá þeirri fyrstu, sem haldin var í Rio de Janeiro árið 1992. Tilgangurinn er að finna leiðir til að koma í veg fyrir hlýnun jarðar af völdum útblásturs gróðurhúsalofttegunda. Kyoto-samningurinn, sem gerður var á þriðju ráðstefnunni í Japan árið 1997, rennur út á næsta ári og þurfa aðildarríki ráðstefnunnar að komast að samkomulagi um það hvað við tekur. Dregist hefur árum saman að komast að slíku samkomulagi, meðal annars vegna ágreinings um það hvernig byrðarnar eigi að skiptast á milli auðugra landa og þróunarlanda. Til umræðu á ráðstefnunni er, að sögn Figueres, „ekkert minna en áhrifaríkasta bylting sem mannkynið hefur séð í orkumálum, iðnaði og atferli.“ Bandaríkin, Japan og fleiri ríki vilja fresta enn frekar ákvörðun um framhaldið, og nú hafa Indland og Brasilía tekið undir það. Lítil eyríki, sem eiga á hættu að sökkva í sæ takist ekki að stöðva þróunina, hafa lagt einna mesta áherslu á að samkomulag takist sem allra fyrst.- gb
Loftslagsmál Mest lesið Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Segir af sér vegna lestarslysa Erlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ Sjá meira