Harmageddon

Jóhanna Guðrún: Fimm bestu Led Zeppelin lögin

Jóhanna Guðrún Jónsdóttir söngkona.
Jóhanna Guðrún Jónsdóttir söngkona.
1.

Babe, I‘m Gonna Leave You

Þetta er fyrsta uppáhalds Zeppelin-lagið mitt. Ég sat oft lengi inni í herberginu mínu og hlustaði á það aftur og aftur. Lagið er þó nokkuð kaflaskipt, sem er reyndar algengt í lögum sveitarinnar. Mér líður stundum eins og þeir hafi samið mörg lög og skeytt þeim saman í eitt, það kemur vel út og er mjög einkennandi fyrir þá.

2.

Since I"ve Been Loving You

Jimmy Page er alveg magnaður. Hann og Brian May, úr Queen, voru mínir fyrstu uppáhaldsgítarleikarar. Jimmy Page gerir svo miklu meira en að spila flottar melódíur og sóló á gítarinn, þú finnur greinilega fyrir tilfinningunni sem hann setur í allt sem hann gerir. Ég get til dæmis oft ekki annað en grátið þegar ég hlusta á Since I‘ve Been Loving You. Gítarleikur hans hittir mann beint í hjartastað.

3.

Whole Lotta Love

Það er ekki annað hægt en að dilla sér við þetta lag! Þar að auki er þetta eitt svalasta lag sem ég hef heyrt. Uppáhalds gítarsólóið mitt er í þessu lagi og stend ég mig oft að því að spóla inn í lagið, setja allt í botn og hlusta á sólóið. Ekki má gleyma mögnuðum söng hjá Robert Plant, hann nær fram fílíng sem grípur mann, oft finnst mér eins og hann sé að herma eftir einhverjum. Janis Joplin var ein af hans uppáhaldssöngkonum og það heyrist oft.

4.

Dazed and Confused

Flottasti trommuleikur allra tíma að mínu mati. Trommuslátturinn er hrikalega villtur og gefur laginu mikla orku. Ekki má samt gleyma Robert Plant, sem setur svalleikann í lagið. Hann er með svo mikinn karakter í röddinni sinni, nær að syngja upp í hæstu hæðir en á sama tíma er hann með hása og rifna rödd sem fangar athygli manns frá fyrsta orði. Útkoman er drungaleg, en það er eitt af því sem ég kann að meta við þetta lag.

5.

Ramble on

Þetta lag er mun glaðlegra en mörg önnur frá þeim og kemur manni í gott skap. Robert Plant var mikill aðdáandi Lord of The Rings eftir J.R.R. Tolkien og það er vitnað í þær sögur í þessu lagi sem og í nokkrum öðrum, sem mér þykir mjög skemmtilegt.








×