Trúðurinn Casper kominn á fast 9. september 2011 12:00 Casper Christensen og Iben Hjejle eru hætt saman og er Casper kominn með nýja stúlku upp á arminn, hún er átján árum yngri en hann og er dóttir grínistans Jarls Friis-Mikkelsen.
Casper Christensen er kominn með nýja dömu upp á arminn. Hún heitir Isabel Friis-Mikkelsen og er 25 ára. Og þar af leiðandi átján árum yngri en danski grínistinn. Isabel hefur verið persónuleg aðstoðarkona leikarans undanfarin ár og nú virðist sem þau hafi tekið það starf með sér heim. Casper harðneitaði reyndar að viðurkenna að það væri eitthvað þeirra á milli í júlí á þessu ári en þá voru þau nýkomin heim úr vikuferð frá Mallorca. Casper var áður í sambúð með Iben Hjejle en hún lék stórt hlutverk í Klovn-þáttunum. Casper og Iben komu oft til Íslands og héldu meðal annars upp á jólin hér á landi. Og því má fastlega reikna með því að Isabel verði fljótlega Íslandsvinur. Skötuhjúin hafa vakið mikla athygli í Danmörku, ekki eingöngu vegna aldursmunarins heldur einnig fyrir þá staðreynd að Isabel er dóttir Jarls Friis-Mikkelsen sem er góðvinur Caspers og Franks Hvam og hefur af og til leikið í Klovn-þáttunum. Í samtali við BT viðurkennir Jarlinn, eins og hann er kallaður í dönskum miðlum, að sambandið hafi komið honum í opna skjöldu en hann sjái enga meinbugi á því. „Aldursmunur er ekki neitt atriði, þetta snýst allt um hugarfarið. Og ég held að Casper sé sérlega ungur í anda," hefur BT eftir honum en Jarlinn er sjálfur giftur Susanne Pehrsson sem er 23 árum yngri. „Ástin er eins og Guð, vegir hennar eru órannsakanlegir," bætir hann við.
Íslandsvinir Mest lesið „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ Lífið Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Bíó og sjónvarp Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Menning Menningarsprautur í hvísluleik Menning Kát á kynfræðslukarnivali Menning Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy Lífið Horfa fram á sögulegt tap Diggers Bíó og sjónvarp „Ég mun sakna þín, sonur“ Lífið Bombur á Barokki á klúbbnum Lífið RJ Mitte er látinn Lífið Fleiri fréttir „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Sjá meira