Lífrænn markaður á Lækjartorgi 23. ágúst 2011 21:00 Markaðurinn er opinn frá 11 til 17 frá þriðjudögum til laugardags og hefur leyfi til að vera á Lækjartorgi út september. Fréttablaðið/Vilhelm
Frá miðjum júlí hefur Ari Hultquist boðið vegfarendum að kaupa glænýtt lífrænt ræktað grænmeti í sölubás á Lækjartorgi. „Markaðurinn er á vegum Græna hlekksins,“ útskýrir Ari en Græni hlekkurinn er fyrirtæki sem sérhæfir sig í dreifingu á lífrænum afurðum, bæði íslenskum og erlendum. Hjónin Karólína Gunnarsdóttir og Þórður G. Halldórsson á lífrænu garðyrkjustöðinni Akri standa að baki fyrirtækinu. Á lífræna markaðnum á Lækjartorgi selur Ari mest íslenskt grænmeti sem hann fær frá öllum helstu bændum sem stunda lífræna ræktun. Þá er hann einnig með eitthvað af lífrænum ávöxtum sem eru þá innfluttir. „Hér er mjög fjölbreytt úrval af grænmeti. Ég fæ það ferskt daglega frá bændum og oft býð ég grænmeti sem ekki fæst í verslunum,“ segir Ari og nefnir sem dæmi næpur, blaðlauk og grænkál. Hann segir fólk hafa tekið mjög vel í framtakið. „Margir stoppa og spjalla og eru ánægðir með markaðinn. Þeir vilja sjá fleiri slíka á Lækjartorgi, til dæmis með blóm,“ segir Ari. Hann segir að kokkar bestu veitingastaða bæjarins líti einnig iðulega við og grípi með sér brakandi ferskt grænmetið. Markaðurinn er opinn frá 11 til 17 frá þriðjudögum til laugardags en Ari hefur leyfi til að vera á Lækjartorgi út september. Rigning og kuldi hefur engin áhrif á Ara sem stendur vaktina í öllu veðri. „Rokið er hins vegar verra og ég þarf að víkja ef vindurinn verður of mikill.“
Reykjavík Mest lesið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Notch setur glæsihúsið á sölu Leikjavísir Ofurfyrirsæta blæs nýju lífi í Life-tímaritið Menning Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Lífið Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Lífið samstarf Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Gengst við dulnefninu en vill samt ekki kannast við það Menning Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Tónlist Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Lífið