Alþingi taki boði stjórnlagaráðs Hjörtur Hjartarson sagnfræðingur skrifar 11. ágúst 2011 11:00 Föstudaginn 29. júlí afhenti stjórnlagaráð Alþingi frumvarp að nýrri stjórnarskrá. Ekki aðeins tók Alþingi við vel unnu verki heldur fylgdi viturlegt boð allra fulltrúa í stjórnlagaráði um að þeir væru reiðubúnir að vinna, sameiginlega, úr athugasemdum þingsins við frumvarpið, ef einhverjar væru. Þung rök mæla með því að Alþingi þiggi boðið. Hvorki fyrr né síðar hefur frumvarp að lögum verið unnið í jafnopinni og víðtækri samvinnu við almenning í landinu og það sem stjórnlagaráð hefur nú fært Alþingi. Vinnulag stjórnlagaráðs er önnur meginskýringin á velheppnuðu verki þess. Hin er sú að stjórnlagaráð er skipað almennum borgurum. Þeir létu sig engu varða sérhagsmuni stjórnmálaflokka og hagsmunahópa þeim tengdum. Stjórnlagaráð smíðaði frumvarp að nýrri stjórnarskrá aðeins með hagsmuni fólksins, vítt og breitt um landið, að leiðarljósi. Halda þarf til streitu vinnulagi og afstöðu stjórnlagaráðs. Stjórnlagaráð svaraði ákallinu um gagngerar breytingar á stjórnarháttum í landinu. Nái frumvarp þess fram að ganga verður lagður grunnur að heilbrigðara og réttlátara samfélagi á Íslandi. Varaformaður helsta valdaflokks landsins sagði nýlega, að skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis myndi ekki þvælast fyrir nema stutta stund. Það er glámskyggni. Gleymum ekki því, að hér var „vanhæfri ríkisstjórn“ ýtt frá völdum af almennum borgurum í mestu og víðtækustu mótmælum sem gengið hafa yfir landið. Enginn ætti að láta framhjá sér fara kröfuna um breytingar sem í mótmælunum fólst eða telja sér trú um hægt sé að bíða hana af sér. Slík afstaða er ábyrgðarlaus og ávísun á enn meiri ógöngur. Stjórnlagaráð áttaði sig blessunarlega á þessu, en stjórnmálaflokkarnir eiga enn langt í land. Alþingi þarf að taka mið af ástandinu í landinu og samhengi hlutanna. Á Íslandi varð ekki aðeins fjármálahrun, heldur einnig siðferðilegt og pólitískt hrun. Rannsóknarskýrsla Alþingis staðfesti verstu grunsemdir almennings um íslenska stjórnmálastétt, stjórnmálaflokka og stjórnsýslu, og óheilbrigt samkrull viðskiptalífs og stjórnmála. Alþingi verður einnig að taka mið af því að alþingiskosningar hafa ekki farið fram eftir að hin hrikalega skýrsla kom út. Af þessum ástæðum er núverandi þing mjög vanbúið að fást við frumvarp stjórnlagaráðs. Heildarendurskoðun stjórnarskrárinnar var vanrækt í áratugi, til stórskaða fyrir land og þjóð. Höfuðástæðan var sú að stjórnmálaflokkarnir tóku sérhagsmuni sína fram yfir hagsmuni almennings og létu óbreytt ástand gott heita. Það var ekki fyrr en almennir borgarar fengu verkið í hendur að endurskoðunin tókst. Öðrum var reyndar ekki til að dreifa. Við núverandi aðstæður hefði þjóðin aldrei treyst fulltrúum stjórnmálaflokkanna til að semja frumvarp að nýrri stjórnarskrá, og engum kom slíkt til hugar eftir hrunið. Þegar Alþingi tekur frumvarp stjórnlagaráðs til meðferðar, þá býr það enn við sömu tortryggni. Stjórnlagaráð hefur áunnið sér traust með verkum sínum. Alþingi nýtur ekki trausts en þarf að endurheimta það. Að sýna auðmýkt og þiggja boð stjórnlagaráðs, sem nefnt var í upphafi þessarar greinar, gæti orðið mikilvægt skref í þá átt, en afdrifaríkt að hafna því. Nú ríður á að þingmenn, meiri hluti Alþingis og réttsýnir stjórnmálamenn þekki sinn vitjunartíma. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson Skoðun Skoðun Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Sjá meira
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun