Stefna að tvíhliða skráningu - verða áfram í Kauphöllinni 20. mars 2011 16:16 Marel. Myndin er úr safni. „
Það er ekki stefna félagsins að skrá sig úr Kauphöllinni," segir Jón Ingi Herbertsson, upplýsingafulltrúi Marels. Vísir greindi frá því í dag, og vitnaði í DV, að samkvæmt fundargerð fjárfestingafélagsins Horns, að Marel yrði skráð á erlendan markað og því skráð úr Kauphöllinni. Að sögn Jóns Inga þá er ekki rétt að félagið stefni að því að skrá sig úr Kauphöll Íslands, heldur hafi það verið opinbert markið fyrirtækisins að skrá sig einnig á erlendan markað. Því stefnir fyrirtækið á tvíhliða skráningu. „Þetta var tilkynnt sérstaklega til Kauphallarinnar fyrir tveimur árum síðan," segir Jón Ingi og bætir við að DV dragi of mikla ályktun um það að félagið ætli að skrá sig úr Kauphöllinni. Spurður hvort það sé möguleiki á því að skrá félagið eingöngu á erlendan markað, svarar Jón Ingi það ekki vera stefnu félagsins. Spurður hvenær fyrirtækið gæti skráð sig á erlendan markað svarar Jón því til að það sé ekki unnið eftir neinum tímaramma hvað það varðar. Marel er verðmætasta fyrirtæki Kauphallarinnar en það er metið á 91,5 milljarða króna. Nýlega var stoðtækjaframleiðandinn Össur skráður úr Kauphöllinni. Fyrirtækið er skráð í Danmörku. Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar, sagði við það tækifæri, að í ljósi þeirra breytinga sem orðið hafa í viðskiptaumhverfinu og á félaginu sjálfu á undanförnum árum væri eðlilegt að stíga þetta skref og leggja áherslu á hlutabréfamarkað sem getur stutt við fyrirætlanir um framtíðarvöxt félagsins. Kauphöllin hélt hinsvegar áfram að versla með hlutabréf í fyrirtækinu, gegn vilja Össurar. Því er Össur enn skráður í Kauphöllina.
Tengdar fréttir Marel úr Kauphöllinni eftir tvö ár Talið er að fyrirtækið Marel verði skráð á erlendan markað eftir tvö ár samkvæmt fundargerð sem DV greinir frá á heimasíðu sinni. Þar segir að fundargerðin sé frá félaginu Horni, fjárfestingafélagi í eigu Landsbankans, sem fer með stóran hlut í Marel. 20. mars 2011 15:15 Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Sjá meira
Marel úr Kauphöllinni eftir tvö ár Talið er að fyrirtækið Marel verði skráð á erlendan markað eftir tvö ár samkvæmt fundargerð sem DV greinir frá á heimasíðu sinni. Þar segir að fundargerðin sé frá félaginu Horni, fjárfestingafélagi í eigu Landsbankans, sem fer með stóran hlut í Marel. 20. mars 2011 15:15