Alþjóðleg græn vaxtaráætlun Søren Haslund skrifar 30. júlí 2011 06:00 Grænn vöxtur kemur fram sem svar við einhverjum þeim alvarlegustu áskorunum sem heimurinn glímir við í dag. Nauðsynlegar tæknilausnir eru til. Nauðsynlegt fjármagn er til staðar. Sérfræðingar hafa greint áskoranirnar og komið fram með fjölmargar tillögur fyrir þá sem móta eiga stefnuna. Þrátt fyrir það skortir enn samræmingu og nauðsynlegan hraða á umbreytingunum yfir í grænt hagkerfi til að koma af stað nýju iðnvaxtarskeiði. Hvaða hlekk vantar? Það er margsannað að núverandi vaxtarlíkan fyrir hagkerfi heimsins er ekki lengur sjálfbært. Á sama tíma er umbreytingin í grænt hagkerfi hluti af lausninni á nokkrum mikilvægustu áskorunum heimsins; náttúruauðlindir ganga til þurrðar, alheimsfjármálakreppa, fátækt og loftslagsbreytingar. Ef farið er rétt að getur þessi umbreyting – oft nefnd græna iðnbyltingin – komið af stað nýrri hagvaxtarbylgju, á sama hátt og upplýsingabyltingin gerði og þannig tryggt langtíma hagvöxt, þ.m.t. þróun nýrra hagkerfa og vöxt í þróunarlöndunum, um leið og dregið er úr hættu vegna loftslagsbreytinga. Hins vegar er hvorki hægt að treysta eingöngu á markaðsöfl né alþjóða stjórnkerfi til að ýta þessum umbreytingum úr vör. Markaðir munu að lokum stjórnast af skorti á auðlindum í heiminum, en þá hafa jafnframt hinar eyðileggjandi loftslagsbreytingar orðið allsráðandi og grafið undan grundvellinum fyrir framtíðarvexti. Sama vandamál með hægagangi í þróun mála virðist því miður gilda í auknum mæli, varðandi milliríkjasamninga. Alþjóðasamfélagið þarf á nýsköpun að halda til að finna lausnir við alþjóðlegum áskorunum. Við sjáum nú þegar dæmi um það á öðrum sviðum; GAVI er dæmi um mjög árangursríka samvinnu opinberra aðila og einkaaðila, sem hefur tryggt bólusetningu fyrir milljónir barna um allan heim. Á sviði græns vaxtar eru ný félög af ýmsum toga í auknum mæli að líta dagsins ljós með samvinnu opinberra aðila og einkaaðila. Þetta eru góðar fréttir: Hagkerfið verður ekki grænna án nýsköpunar og töluverðrar fjárfestingar einkaaðila. Einungis stjórnvöld hafa vald og umboð til að knýja fram bindandi reglur til þess að efla og hraða grænum vexti. Sköpun á skilvirku hreyfanlegu sambandi milli opinbera geirans og einkaaðila er þess vegna lykillinn að styrkingu metnaðargjarns græns vaxtar. Samt sem áður er spurningunni enn ósvarað varðandi það, hvernig hægt sé að tryggja að slíkt frumkvæði opinberra aðila og einkageirans verði meira en árangurslausar tilraunir. Dönsk stjórnvöld ásamt stjórnvöldum í Kóreu horfast í augu við þessar áskoranir með því að hleypa af stokkunum alþjóðlegu samstarfi einka- og opinberra aðila á sviði græns vaxtar, alþjóðlegri ráðstefnu um grænan vöxt (The Global Green Growth Forum 3GF). Hugmyndin að baki þessari ráðstefnu er jafn einföld og hún er árangursrík: Allir hlutaðeigandi aðilar eru leiddir saman til þess að efla umfangsmikið framtak opinberra aðila og einkaaðila til að flýta fyrir umbreytingunni yfir í grænt hagkerfi. 3GF mun gera það að tillögu sinni að prófað verði nýtt alþjóðlegt líkan fyrir grænan vöxt. Verður það í formi samráðsvettvangs margra aðila með náinni samvinnu fyrirtækja, sérfræðinga og opinberra stofnana. Hið sameiginlega markmið er grænn vöxtur. Á hverju ári frá og með 2011 mun 3GF í Kaupmannahöfn leiða saman leiðtoga rótgróinna og nýstofnaðra samvinnufélaga opinberra aðila og einkaaðila í mismunandi vaxtargeirum innan græns vaxtar. Verður þar komið á tengslum við aðra pólitíska leiðtoga og stjórnendur fyrirtækjasamsteypa. Gerum við þetta með tvö markmið í huga: 1) Til að auka samhæfingu, lærdóm og innblástur frá frumkvöðlum og 2) Til að styrkja tengslin við alþjóðlegt stefnumótunarferli og setningu reglugerða, er tryggi að þessi stefnumótun fái nauðsynlegar upplýsingar frá þeim sem best til þekkja varðandi þær sérstöku hindranir, sem gætu staðið í vegi fyrir grænum vexti og hvernig unnt verður að yfirstíga þær. Samtímis sem þessi rammaáætlun er sköpuð stefnir 3GF að því að koma á ákveðinni byltingu í stefnumótun á hefðbundnari alþjóðlegum samningavettvangi, svo sem G20, Rio +20, COP-ferlinum o.s.frv. Þar sem opinberir aðilar og einkaaðilar eiga að hluta til sameiginlegra hagsmuna að gæta í grænum vexti er hægt að benda á nýja möguleika og leiðir til samvinnu. Mögulegur árangur er ótakmarkaður. Skyldu dönsk stjórnvöld hafa fundið réttu leiðina til þess að ná saman fyrirtækjum og stjórnvöldum til greiningar, ekki einungis á hindrunum heldur einnig á lausnum, þannig að endurnýjað vægi grænnar umbreytingar geti orðið að veruleika. Þetta gæti örvað atvinnulíf, aukið almennan hagvöxt og velmegun fyrir okkur og komandi kynslóðir. Stofnaðilar 3GF eru stjórnvöld í Danmörku, Suður-Kóreu og Mexíkó, alþjóðleg fyrirtæki s.s. ABB, BYD Group, Danfoss, General Electric, Hyundai Motors, McKinsey & Company, Novozymes, Samsung, Siemens og Vestas, auk alþjóðlegra samtaka s.s. OECD, the International Energy Agency (IEA), UN Global Compact, International Finance Corporation (IFC) og the Climate Policy Initiative. 3GF er þróað í samvinnu við Global Green Growth. Fyrsta ráðstefnan verður haldin í Kaupmannahöfn 11.-12. október 2011, þar sem tvö hundruð af áhrifamestu aðilum heimsins, skuldbundnir til að koma grænu vaxtaráætluninni á framfæri, munu hittast til að ræða leiðir til að koma af stað og efla græn vaxtartækifæri á sviði flutninga og orku. Grænn vöxtur merkir að komið verður á hagvexti og þróun sem samtímis tryggir sjálfbæra þróun náttúruauðlinda, er áfram mun sjá okkur fyrir þeirri þjónustu sem velferð okkar byggir á (OECD). Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Skoðun Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Sjá meira
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun