Helgi verslunarmanna? Stefán Einar Stefánsson skrifar 29. júlí 2011 07:00 Nú gengur í garð hin mikla ferðahelgi sem tengd er frídegi verslunarmanna órjúfanlegum böndum. Oftsinnis hefur verið bent á að heiti þessarar helgar sé rangnefni enda er stór hluti verslunarmanna að störfum þessa daga. Skýringin á því liggur fyrst og fremst í félagslegum breytingum sem eiga sér rætur í auknu þjónustustigi og fleiri möguleikum til afþreyingar. Þær breytingar hafa orðið til góðs á flestan hátt, aukið atvinnu og umsvif, en þó fylgir sá böggull skammrifi að þeir sem sérstaklega eiga að njóta hins lögbundna frídags við upphaf ágústmánaðar gera það í alltof fáum tilvikum. Því miður býr verslunarfólk við langa vinnudaga og þegar margir njóta frídaga, hvort sem er að sumri til eða í aðdraganda jólanna, er álagið hvað mest í verslun og þjónustu. Frí annan mánudag í ágúst?Úr þessu þarf að bæta en ekki er auðfundin leið til þess. Væri mögulegt að semja um að þeir sem starfa að verslun og þjónustu á frídegi verslunarmanna vinni sér inn rétt til frítöku annan mánudag í ágústmánuði án skerðingar launa? Þar með yrði atvinnurekendum ekki gert erfitt fyrir að manna stöður þegar verslunarmannahelgin gengur í garð og um leið yrði þeim sem þessi dagur er sérstaklega helgaður gert kleift að njóta þess réttar sem hann á að tryggja. Af hverju?Einhverjir kunna að telja þessa hugmynd óframkvæmanlega eða jafnvel ósanngjarna gagnvart atvinnurekendum og öðru launafólki. Hví ætti sá sem getur aflað sér tekna á degi sem telst til stórhátíða skv. kjarasamningi að njóta þess einnig í auknum frítökurétti? Þessi spurning er eðlileg en með því að veita þeim sem eru að störfum á frídegi verslunarmanna aukafrídag í ágúst er verið að viðurkenna að mjög hefur gengið á tækifæri verslunar- og þjónustufólks til þess að njóta lögbundinna frídaga sem aðrir landsmenn telja sjálfsagða. Góð helgi fram undanVerslunarmannahelgin er okkur flestum mikið tilhlökkunarefni. Við skulum vona að hún fari vel fram og að allir komi heilir heim. Fyrst og síðast hljótum við þó að gleðjast með verslunarmönnum, bæði þeim sem njóta hvíldar frá erli hversdagsins en ekki síður þeirra sem mæta okkur í verslunum landsins yfir helgina. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Sættum okkur ekki við atvinnuleysi Illugi Gunnarsson,Ragnhildur Björt Björnsdóttir Skoðun Einfaldasta sagan er ekki alltaf sú sanna Sigurður Árni Reynisson Skoðun Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir Skoðun Halldór 25.07.2026 Halldór Hver fer í slíkar „samningaviðræður“? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Ég er ekki Evrópusinni Óðinn Freyr Baldursson Skoðun Þetta snýst um aðild Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Hvers vegna „nei“ er eina rökrétta svarið þann 29. ágúst Eggert Sigurbergsson Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir Skoðun Íslenskir vefir á faraldsfæti Birgir Hrafn Birgisson Skoðun Skoðun Skoðun Einfaldasta sagan er ekki alltaf sú sanna Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver fer í slíkar „samningaviðræður“? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sættum okkur ekki við atvinnuleysi Illugi Gunnarsson,Ragnhildur Björt Björnsdóttir skrifar Skoðun Íslenskir vefir á faraldsfæti Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Ég er ekki Evrópusinni Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Hjarðarbólsoddi Oddur Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta snýst um aðild Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna „nei“ er eina rökrétta svarið þann 29. ágúst Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hvaða kröfur eigum við að gera? Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna venjulegt launafólk á að segja JÁ? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar Skoðun Er kominn tími á „Íslenska landklasann“? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Um hvað er hægt að semja? Jónas Már Torfason skrifar Skoðun Sumarið, samveran og samspil taugakerfa Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Þegar peningarnir og pólitíkin mæta nýjum veruleika Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Bíp... bíp... bíp… Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Króna eða evra? Bolli Héðinsson skrifar Skoðun Dauðans alvara – fölsuð lyf og ólögleg lyfsala Alma D. Möller,Rúna Hauksdóttir skrifar Skoðun Hvað er samfélagsmiðill? Anna Laufey Stefánsdóttir skrifar Skoðun Stöðugleiki í heljargreipum Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu Hjörtur Hjartarson skrifar Skoðun Það sem gögnin fundu ekki Elliði Vignisson skrifar Skoðun Eru Íslendingar afglapar í samningatækni? Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Baldur snýr heim á Breiðafjörð Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar allir bera ábyrgð? Snorri Birgisson skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru samningaviðræður Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Dagur, bannað að plata! Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Íslenska sumarveðrið dýrmæt auðlind? Gunnar Salvarssson skrifar Sjá meira
Nú gengur í garð hin mikla ferðahelgi sem tengd er frídegi verslunarmanna órjúfanlegum böndum. Oftsinnis hefur verið bent á að heiti þessarar helgar sé rangnefni enda er stór hluti verslunarmanna að störfum þessa daga. Skýringin á því liggur fyrst og fremst í félagslegum breytingum sem eiga sér rætur í auknu þjónustustigi og fleiri möguleikum til afþreyingar. Þær breytingar hafa orðið til góðs á flestan hátt, aukið atvinnu og umsvif, en þó fylgir sá böggull skammrifi að þeir sem sérstaklega eiga að njóta hins lögbundna frídags við upphaf ágústmánaðar gera það í alltof fáum tilvikum. Því miður býr verslunarfólk við langa vinnudaga og þegar margir njóta frídaga, hvort sem er að sumri til eða í aðdraganda jólanna, er álagið hvað mest í verslun og þjónustu. Frí annan mánudag í ágúst?Úr þessu þarf að bæta en ekki er auðfundin leið til þess. Væri mögulegt að semja um að þeir sem starfa að verslun og þjónustu á frídegi verslunarmanna vinni sér inn rétt til frítöku annan mánudag í ágústmánuði án skerðingar launa? Þar með yrði atvinnurekendum ekki gert erfitt fyrir að manna stöður þegar verslunarmannahelgin gengur í garð og um leið yrði þeim sem þessi dagur er sérstaklega helgaður gert kleift að njóta þess réttar sem hann á að tryggja. Af hverju?Einhverjir kunna að telja þessa hugmynd óframkvæmanlega eða jafnvel ósanngjarna gagnvart atvinnurekendum og öðru launafólki. Hví ætti sá sem getur aflað sér tekna á degi sem telst til stórhátíða skv. kjarasamningi að njóta þess einnig í auknum frítökurétti? Þessi spurning er eðlileg en með því að veita þeim sem eru að störfum á frídegi verslunarmanna aukafrídag í ágúst er verið að viðurkenna að mjög hefur gengið á tækifæri verslunar- og þjónustufólks til þess að njóta lögbundinna frídaga sem aðrir landsmenn telja sjálfsagða. Góð helgi fram undanVerslunarmannahelgin er okkur flestum mikið tilhlökkunarefni. Við skulum vona að hún fari vel fram og að allir komi heilir heim. Fyrst og síðast hljótum við þó að gleðjast með verslunarmönnum, bæði þeim sem njóta hvíldar frá erli hversdagsins en ekki síður þeirra sem mæta okkur í verslunum landsins yfir helgina.
Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir Skoðun
Skoðun Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir skrifar
Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar
Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar
Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir Skoðun