Gengislánadómur féll bönkum í hag 30. júní 2011 05:45 Björn Þorri Viktorsson
Héraðsdómur Suðurlands kvað á föstudag upp dóm í máli Íslandsbanka gegn hjónum sem tóku gengistryggt lán hjá bankanum snemma árs 2008. Dómurinn er sá fyrsti sem fellur síðan Alþingi samþykkti lög um uppgjör gengislána og var því um prófmál að ræða. Tekist var á um endurútreikning lánsins, í kjölfar ógildingar á gengistryggðum lánum bankans, og féll dómurinn Íslandsbanka í hag. Íslandsbanki hafði reiknað vexti lánsins, með hliðsjón af lægstu óverðtryggðu vöxtum Seðlabankans, frá útborgunardegi til dagsins í dag. Hjónunum sem bankinn stefndi þótti hins vegar óeðlilegt að uppgerðir gjalddagar væru endurreiknaðir. Gerðu þau því kröfu um að endurútreikningar giltu frá dómsuppsögu en ekki útborgunardegi. Til vara vildu þau láta útreikninga gilda frá útgáfudegi síðustu greiðslukvittunar og til þrautavara frá yfirtökudegi stefnanda á kröfunni. „Úrskurðurinn er gríðarleg vonbrigði. Ekki bara fyrir þetta fólk heldur alla þá sem hafa trúað því og treyst að fullnaðarkvittanir hefðu raunverulegt gildi á Íslandi,“ segir Björn Þorri Viktorsson, lögmaður hjónanna, og bætir við: „Maður veltir því fyrir sér hvaða reglur er verið að móta í einkaréttarlegum viðskiptum þegar Alþingi kemur og ógildir með almennum lögum viðskipti sem eru löngu frágengin og jafnvel tíu ára gömul. Þetta er mjög umhugsunarvert og maður veltir því fyrir sér hvað sé næst.“- mþl
Mest lesið Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Neytendur Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Viðskipti innlent Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Viðskipti innlent Fyrsta apótek Víkur opnað Viðskipti innlent Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Viðskipti erlent Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Viðskipti erlent Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum Viðskipti innlent Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Viðskipti erlent Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés Viðskipti erlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Fleiri fréttir Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Sjá meira