Orð gegn orði um yfirlýsinguna 14. júní 2011 03:00 Engin vitni Karli, Hjálmari og Sigrúnu Pálínu ber ekki saman um hvað fram fór á fundinum í Hallgrímskirkju.
Þjóðkirkjan Rannsóknarnefnd kirkjuþings telur sig ekki geta skorið úr um það sem fram fór á fundi Sigrúnar Pálínu Ingvarsdóttur með þeim Karli Sigurbjörnssyni, núverandi biskupi, og Hjálmari Jónssyni, núverandi dómkirkjupresti, í Hallgrímskirkju þann 3. mars 1996 sökum þess að orð standi þar gegn orði. Þegar ásakanirnar gegn Ólafi biskupi komust aftur í hámæli á síðasta ári var mikið fjallað um þennan fund og sáttayfirlýsingu sem átti þar að undirrita. Bar Sigrún Pálína, að eftir að samkomulag hefði tekist um orðalag yfirlýsingar, hefði Karl prentað textann út, en þá hefði vantað setningu inn í, þar sem Sigrún Pálína sagðist standa við sína frásögn af samskiptunum við Ólaf biskup. Því hafi fundinum lokið án þess að nokkur yfirlýsing væri undirrituð. Karl og Hjálmar þvertóku fyrir slíkt í svörum sínum til rannsóknarnefndarinnar. Þar sem engin vitni eru um framvinduna nema þau sem eiga aðkomu að málinu, segist nefndin ekki hafa forsendur til að fjalla frekar um þessa hlið málsins. Það var þó niðurstaða nefndarinnar að þátttaka Karls í þessari sáttamiðlun hafi verið mistök af hans hálfu, sökum fyrri aðkomu hans að málinu.- þj
Mest lesið Hver er þessi 28 ára maður sem gæti orðið forsætisráðherra Frakka? Erlent „Þetta var bara eins og hryðjuverk“ Innlent Vitni segir bílinn hafa ekið hratt fram úr sér skömmu fyrir slysið Innlent „Hvernig getur sama fólk snúist svona í skoðunum sínum?“ Innlent Sælkerasveppir ræktaðir í gróðrarstöð í Mosfellsdal Innlent Óttast að Quang Le hafi samband við þolendur Innlent Stútfull hátíðardagskrá um allt land á 17. júní Innlent Neita að borga tjón eftir að hafa mokað snjó yfir bíl Innlent Parísarhjól sprettur upp við höfnina Innlent Eldur kviknaði í iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Eldur kviknaði í iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði „Þetta var bara eins og hryðjuverk“ „Hvernig getur sama fólk snúist svona í skoðunum sínum?“ Sælkerasveppir ræktaðir í gróðrarstöð í Mosfellsdal Óttast að Quang Le hafi samband við þolendur Vitni segir bílinn hafa ekið hratt fram úr sér skömmu fyrir slysið Altjón í tíu búðum Kringlunnar og undirbúningur fyrir þjóðhátíðardaginn Oddviti Garðarbæjarlistans hættir í Samfylkingunni Neita að borga tjón eftir að hafa mokað snjó yfir bíl Stútfull hátíðardagskrá um allt land á 17. júní „Þetta er stórtjón fyrir okkur“ Parísarhjól sprettur upp við höfnina Stefna á að opna Kringluna á þriðjudag Fá ekki fjármagn til að laga Flóttamannaleiðina fyrr en 2028 Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni Það verði „drulluerfitt“ að rífa VG úr lægðinni Jarðaberjarækt í grænum iðngarði í Helguvík Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Slökkvistarf í Kringlunni og staða Vinstri grænna Laxateljari greinir eldislaxa frá villtum löxum Ferðaþjónustan, þingmálin og Running Tide í Sprengisandi Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Myndir: Allt á floti í Kringlunni Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Konungsskip Dana í Reykjavík „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Safnað fyrir gróðurskála á Kirkjubæjarklaustri „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Sjá meira