Sænsk-íslensk matarreisa 9. mars 2011 00:01 Lárus Gunnar Jónasson á Fiskfélaginu. Mynd/Vilhelm
Á Fiskfélaginu kætast bragðlaukar í Íslandsferð með sænskum fararstjóra. „Hann er frumlegur og djarfur matreiðslumaður sem passar Fiskfélaginu vel,“ segir Lárus Gunnar Jónasson matreiðslumeistari á Fiskfélaginu, um sænska sælkerakokkinn Andreas Andersson sem þar sýnir listir sínar á matar- og menningarhátíðinni Food and Fun. „Þrátt fyrir ungan aldur hefur Andreas skapað sér góðan orðstír og er nú einn af heitustu og eftirsóttustu kokkum Norðurlanda. Hann starfar sem yfirkokkur á veitingastaðnum Carls, sem er flottasti og vinsælasti veitingastaður Oslóar, en áður hefur hann matreitt víða um Norðurlönd, sem og á Sketch í Lundúnum undir strangri handleiðslu Pierre Gagnaire, sem er franskur guð í heimi matarmenningar,“ segir Lárus sem bíður spenntur eftir liðsauka Andreasar við Fiskfélagið. „Andreas hefur aldrei komið til Íslands en hlakkar til að vinna með íslenskum kokkum. Matseðill hans lofar góðu og samvinna okkar býður upp á dásamlega upplifun fyrir bragðlaukana. Við munum aðstoða Andreas með ferskt, íslenskt hráefni en hans hæfileikar felast í að prófa eitthvað nýtt sem svo blandast við matarupplifun Fiskfélagsins sem nefnist Ferðalag um Ísland. Þetta verður því einskonar sænsk-íslensk matarreisa,“ segir Lárus hress. „Andreas verður með forvitnilega nálgun á humar, lax og þorsk, gerir fjórar mismunandi útfærslur af íslensku lambakjöti, freistandi skyrpinna í eftirrétt ásamt ekta sænskri gulrótarköku, því eins og sannur Svíi elskar hann gulrætur,“ upplýsir Lárus og hvetur fólk til að festa sér borð strax þar sem vinsældir Food and Fun séu miklar.
Food and Fun Mest lesið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun Eva Marie Saint er látin Lífið „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Lífið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist