Ráðleggur fólki að hætta að borga Jón Hákon Halldórsson skrifar 20. apríl 2011 09:48 Einar Hugi Bjarnason ráðleggur fólki að hætta að greiða af fjármögnunarleigusamningunum.
Einar Hugi Bjarnason héraðsdómslögmaður ráðleggur þeim aðilum sem gerðu fjármögnunarleigusamninga við fjármálastofnanirnar að hætta að greiða af þeim. Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp úrskurð í gær, í máli Íslandsbanka gegn Kraftvélaleigunni, um að slíkir samningar væru óheimilir samkvæmt vaxtalögum. Einar Hugi Bjarnason hefur rekið sambærilegt mál fyrir Smákrana ehf. gegn Lýsingu. „Það er náttúrlega kominn þessi dómur núna sem staðfestir það að þetta eru ólögmætir lánssamningar. Og það auðvitað liggur þá fyrir út frá því að það hefur verið um ofgreiðslur að ræða í langan tíma. Þannig að það er ástæðulaust að greiða áfram af samningunum á meðan ekki er leyst úr þessu endanlega,“ segir Einar Hugi, lögmaður hjá ERGO lögmönnum. Einar Hugi segir að þar sem Íslandsbanki hafi ákveðið að áfrýja úrskurðinum í gær til Hæstaréttar megi búast við því að ekki verði brugðist við honum fyrr en að dómur Hæstaréttar er genginn í málinu. „Það verða engir endurútreikningar eða neitt fyrr en Hæstiréttur er búinn að klára sig í þessu,“ segir Einar Hugi. Hann veltir fyrir sér hvaða áhrif högg eins og þetta hafi á fyrirtæki eins og Lýsingu, þar sem fréttir hafa borist af bágri eiginfjárstöðu. Hugsanlegt sé að fólk fái ekkert upp í kröfur sínar sem það kann að eiga vegna ofgreiðslna af samningunum. „Sá möguleiki fyrir hendi að ef allt færi á versta veg og Lýsing færi í slitameðferð, eins og fordæmi eru fyrir varðandi Avant, þá gæti fólk setið eftir með kröfur þar sem lítið eða ekkert fengist út úr búinu,“ segir Einar Hugi.
Tengdar fréttir Niðurstaða héraðsdóms gríðarlega mikilvæg Samtök iðnaðarins segja að dómur Héraðsdóms Reykjavíkur í dag, þar sem fjármögnunarleigusamningar voru dæmdir ólöglegir, sé gríðarlega mikilvægur. Slíkir samningar voru einkum notaðir til að fjármagna kaup á atvinnutækjum fyrir hrun. 19. apríl 2011 16:24 Fjármögnunarleigusamningar eru ólöglegir Héraðsdómur Reykjavíkur komst í dag að þeirri niðurstöðu að fjármögnunarleigusamningar væru ólöglegir. Slíkir samningar voru einkum gerðir áður en gengi íslensku krónunnar hrundi árið 2008 til þess að fjármagna kaup fyrirtækja á atvinnutækjum, svo sem flutningabifreiðum, grfum og öðru sambærilegu. 19. apríl 2011 16:03 Mest lesið Ný könnun sýnir hvað pirrar umsækjendur og vinnuveitendur mest Atvinnulíf Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Viðskipti innlent Play komið í eignasafn Icelandair Viðskipti innlent Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Viðskipti innlent Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Viðskipti innlent Auglýsi sjúkdóma til að komast fram hjá reglum Neytendur Klámfengið spjallmenni Zuckerbergs vekur ugg innan klámgeirans Viðskipti erlent Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Sjá meira
Niðurstaða héraðsdóms gríðarlega mikilvæg Samtök iðnaðarins segja að dómur Héraðsdóms Reykjavíkur í dag, þar sem fjármögnunarleigusamningar voru dæmdir ólöglegir, sé gríðarlega mikilvægur. Slíkir samningar voru einkum notaðir til að fjármagna kaup á atvinnutækjum fyrir hrun. 19. apríl 2011 16:24
Fjármögnunarleigusamningar eru ólöglegir Héraðsdómur Reykjavíkur komst í dag að þeirri niðurstöðu að fjármögnunarleigusamningar væru ólöglegir. Slíkir samningar voru einkum gerðir áður en gengi íslensku krónunnar hrundi árið 2008 til þess að fjármagna kaup fyrirtækja á atvinnutækjum, svo sem flutningabifreiðum, grfum og öðru sambærilegu. 19. apríl 2011 16:03