Lýsi byggir nýja verksmiðju við Fiskislóð 10. júní 2011 10:15
Í dag, föstudaginn 10. júní kl. 14:30, verður fyrsta skóflustungan tekin að byggingu nýrrar verksmiðju Lýsis við Fiskislóð. Nýja verksmiðjan verður tæpir 4.000 fermetrar að stærð og í henni búnaður sem tvöfaldar núverandi afkastagetu. Í tilkynningu segir að eftirspurn eftir afurðum LÝSIS hefur verið mjög góð, en um 90% afurðanna eru seld til annarra landa. Þar er bæði um neytendavörur að ræða, en að magni til er stærstur hluti útflutningsins magnvara sem seld er til framleiðenda á neytendavöru í öllum byggðum álfum heimsins. Eftir vaxandi sölu ár frá ári er nú svo komið að afkastagetan er nær fullnýtt, og fyrirsjáanleg aukning á eftirspurn kallar á aukna framleiðslugetu. Henni á að mæta með byggingu nýrrar verksmiðju á Fiskislóðinni við hlið núverandi verksmiðju. Eins og síðast er það Héðinn sem annast mun hönnun og uppsetningu verksmiðjunnar, Arkþing hannar bygginguna og aðalverktaki er J.E.Skjanni. Auk nýju verksmiðjunnar verður skrifstofurými tvöfaldað og rými verður fyrir tanka og vörugeymslu. Búnaðurinn kemur til landsins í nóvember næstkomandi og hefja tæknimenn Héðins þá uppsetningu, samhliða byggingu hússins. Áformað er að þessi nýja viðbót verði tekin í notkun næsta vor og mun afkastageta verksmiðjunnar þá aukast úr yfir 6 þúsund tonnum í um 13 þúsund tonn á ári. Landsbankinn fjármagnar verkið og verður skrifað undir fjármögnunarsamning í dag kl. 13:00.
Mest lesið Snúsari sem missti andann yfir Óla Stef og Johnny Depp Atvinnulíf Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Viðskipti innlent Fljúga daglega til Boston Viðskipti innlent Sýndu fljúgandi Roadster Viðskipti erlent Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Viðskipti innlent Lokanir, lægðir og samviskubit Atvinnulíf Rafnar fylgir Herði og segir upp Viðskipti innlent „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Viðskipti innlent Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Sjá meira