Tveir ávextir 8. september 2011 06:00 Þegar árangur þróunarsamvinnu og hjálparstarfs er metinn er eðlilegt að rýnt sé í tölur. Þær segja okkur m.a. að börnum sem sækja skóla í þróunarríkjum hefur fjölgað um 40 milljónir á átta árum. Á bak við slíkar tölur eru þó einstaklingar sem eiga sínar fjölskyldur og heyja sína lífsbaráttu í gleði og sorg, líkt og við öll. Tveir slíkir einstaklingar og „ávextir“ þróunarsamvinnu eru okkur ofarlega í huga. Sá fyrri heitir Omsula og er 18 ára drengur frá Kenýa. Móðir hans dó af barnsförum þegar hann var 5 ára gamall og nokkrum árum síðar lést faðir hans. Omsula fór þá með eldri bróður sínum til Nairobí. Bróðir hans fékk vinnu en þénaði aðeins 3 dollara á viku. Það dugði ekki fyrir mat, skólagjöldum og húsaleigu og varð fátæktin til þess að Omsula flutti alveg á götuna þegar hann var 12 ára. Hann sameinaðist gengi götustráka og leitaði í vímuefni til að afbera þjáningarnar. Eftir ár á götunni frétti hann af heimili ABC barnahjálpar og komst þangað. Hann er nú í góðum framhaldsskóla og dreymir um að verða dómari. Hann er afar þakklátur Þórunni, starfsfólki ABC í Kenýa og stuðningsaðila sínum á Íslandi fyrir að gefa sér tækifæri. Hinn „ávöxturinn“ heitir Refilwe Motlhanka og er frá Botsvana. Heimsæki maður Disney World í Flórída á maður líklega ekki von á því að starfsmaðurinn sem tekur á móti manni sé uppvaxið munaðarlaust barn frá Afríku sem á þróunarsamvinnu allt að þakka. Refilwe og fjögur systkini hennar lentu ung á götunni en fengu svo móður og heimili í SOS barnaþorpi. Með hjálp styrktarforeldra gekk hún menntaveginn og bauðst síðan að fara til Flórída og vinna þar sem starfsnemi. Í dag starfar hún hjá Stanbic bankanum í Botsvana og lifir góðu lífi. Yfir hundrað þúsund fyrrverandi styrktarbörn starfa nú sem kennarar, flugstjórar, kokkar, endurskoðendur, þingmenn, félagsráðgjafar o.fl. um allan heim. Þróunarsamvinna ber ávöxt. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Sættum okkur ekki við atvinnuleysi Illugi Gunnarsson,Ragnhildur Björt Björnsdóttir Skoðun Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir Skoðun Einfaldasta sagan er ekki alltaf sú sanna Sigurður Árni Reynisson Skoðun Halldór 25.07.2026 Halldór Hver fer í slíkar „samningaviðræður“? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Ég er ekki Evrópusinni Óðinn Freyr Baldursson Skoðun Þetta snýst um aðild Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Hvers vegna „nei“ er eina rökrétta svarið þann 29. ágúst Eggert Sigurbergsson Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir Skoðun Hjarðarbólsoddi Oddur Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Einfaldasta sagan er ekki alltaf sú sanna Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver fer í slíkar „samningaviðræður“? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sættum okkur ekki við atvinnuleysi Illugi Gunnarsson,Ragnhildur Björt Björnsdóttir skrifar Skoðun Íslenskir vefir á faraldsfæti Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Ég er ekki Evrópusinni Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Hjarðarbólsoddi Oddur Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta snýst um aðild Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna „nei“ er eina rökrétta svarið þann 29. ágúst Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hvaða kröfur eigum við að gera? Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna venjulegt launafólk á að segja JÁ? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar Skoðun Er kominn tími á „Íslenska landklasann“? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Um hvað er hægt að semja? Jónas Már Torfason skrifar Skoðun Sumarið, samveran og samspil taugakerfa Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Þegar peningarnir og pólitíkin mæta nýjum veruleika Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Bíp... bíp... bíp… Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Króna eða evra? Bolli Héðinsson skrifar Skoðun Dauðans alvara – fölsuð lyf og ólögleg lyfsala Alma D. Möller,Rúna Hauksdóttir skrifar Skoðun Hvað er samfélagsmiðill? Anna Laufey Stefánsdóttir skrifar Skoðun Stöðugleiki í heljargreipum Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu Hjörtur Hjartarson skrifar Skoðun Það sem gögnin fundu ekki Elliði Vignisson skrifar Skoðun Eru Íslendingar afglapar í samningatækni? Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Baldur snýr heim á Breiðafjörð Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar allir bera ábyrgð? Snorri Birgisson skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru samningaviðræður Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Dagur, bannað að plata! Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Íslenska sumarveðrið dýrmæt auðlind? Gunnar Salvarssson skrifar Sjá meira
Þegar árangur þróunarsamvinnu og hjálparstarfs er metinn er eðlilegt að rýnt sé í tölur. Þær segja okkur m.a. að börnum sem sækja skóla í þróunarríkjum hefur fjölgað um 40 milljónir á átta árum. Á bak við slíkar tölur eru þó einstaklingar sem eiga sínar fjölskyldur og heyja sína lífsbaráttu í gleði og sorg, líkt og við öll. Tveir slíkir einstaklingar og „ávextir“ þróunarsamvinnu eru okkur ofarlega í huga. Sá fyrri heitir Omsula og er 18 ára drengur frá Kenýa. Móðir hans dó af barnsförum þegar hann var 5 ára gamall og nokkrum árum síðar lést faðir hans. Omsula fór þá með eldri bróður sínum til Nairobí. Bróðir hans fékk vinnu en þénaði aðeins 3 dollara á viku. Það dugði ekki fyrir mat, skólagjöldum og húsaleigu og varð fátæktin til þess að Omsula flutti alveg á götuna þegar hann var 12 ára. Hann sameinaðist gengi götustráka og leitaði í vímuefni til að afbera þjáningarnar. Eftir ár á götunni frétti hann af heimili ABC barnahjálpar og komst þangað. Hann er nú í góðum framhaldsskóla og dreymir um að verða dómari. Hann er afar þakklátur Þórunni, starfsfólki ABC í Kenýa og stuðningsaðila sínum á Íslandi fyrir að gefa sér tækifæri. Hinn „ávöxturinn“ heitir Refilwe Motlhanka og er frá Botsvana. Heimsæki maður Disney World í Flórída á maður líklega ekki von á því að starfsmaðurinn sem tekur á móti manni sé uppvaxið munaðarlaust barn frá Afríku sem á þróunarsamvinnu allt að þakka. Refilwe og fjögur systkini hennar lentu ung á götunni en fengu svo móður og heimili í SOS barnaþorpi. Með hjálp styrktarforeldra gekk hún menntaveginn og bauðst síðan að fara til Flórída og vinna þar sem starfsnemi. Í dag starfar hún hjá Stanbic bankanum í Botsvana og lifir góðu lífi. Yfir hundrað þúsund fyrrverandi styrktarbörn starfa nú sem kennarar, flugstjórar, kokkar, endurskoðendur, þingmenn, félagsráðgjafar o.fl. um allan heim. Þróunarsamvinna ber ávöxt.
Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir Skoðun
Skoðun Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir skrifar
Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar
Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar
Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir Skoðun