Viðskipti innlent

Alcoa ætlar að endurmeta áform um álver við Húsavík

Tómas Már segir að Alcoa muni endurmeta áform sín um álverið.
Tómas Már segir að Alcoa muni endurmeta áform sín um álverið. Mynd/ Stefán.
Alcoa hyggst endurmeta áform um álver við Húsavík í ljósi orða iðnaðarráðherra í gær og annarra frétta af orkusölumálum á Norðurlandi síðustu daga. Þetta kemur fram í yfirlýsingu, sem Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa á Íslandi, sendi frá sér síðdegis.

Alcoa segist frá upphafi hafa skoðað byggingu álvers á Bakka af fullri alvöru og varið umtalsverðum tíma, orku og fjármunum til undirbúnings verkefnisins. Hins vegar hafi íslensk stjórnvöld og Landsvirkjun undanfarin tvö ár leitað annarra fjárfestingartækifæra en álvers fyrir Bakka og nýjustu fréttir bendi til þess að orkusölumál á Norðurlandi hafi tekið nýja stefnu. Í ljósi þessa muni Alcoa meta hvaða áhrif það hafi mögulega fjárfestingu á félagsins á Bakka.

Yfirlýsingin í heild er svohljóðandi:

Í viðtölum við iðnaðarráðherra í fjölmiðlum í gær, sagði ráðherrann að hann teldi ekki að Alcoa myndi taka ákvarðanir um uppbyggingu álvers á Bakka á næstu árum. Því hefði verið mikilvægt að leita annarra fjárfestingartækifæra fyrir atvinnuuppbyggingu á Bakka.

Af þessu tilefni vill Alcoa á Íslandi taka fram:

Við höfum frá upphafi skoðað byggingu álvers á Bakka af fullri alvöru og höfum varið umtalsverðum tíma, orku og fjármunum til undirbúnings verkefnisins. Alcoa tekur ekki einhliða ákvörðun um hvort álver verður reist á Bakka eða ekki. Hér er um að ræða stórt verkefni og umfangsmikla fjárfestingu, sem aðeins getur orðið að veruleika með góðri samvinnu Alcoa, íslenskra stjórnvalda, viðkomandi sveitarfélaga og orkufyrirtækja, að uppfylltum þeim skilyrðum sem sett eru í verkefni sem þessu. Við höfum bent á það frá byrjun að þróun verkefnisins réðist af því hvort næg orka verði tiltæk á svæðinu á samkeppnishæfu verði , ásamt því hvenær afhending hennar gæti farið fram. Íslensk stjórnvöld og Landsvirkjun hafa undanfarin tvö ár leitað annarra fjárfestingartækifæra en álvers, fyrir atvinnuuppbyggingu á Bakka og nýjustu fréttir benda til þess að orkusölumál á Norðurlandi hafi tekið nýja stefnu. Í ljósi þessa munum við meta hvaða áhrif það hefur á Alcoa og mögulega fjárfestingu á Bakka.

Reykjavík 14. september 2011.

Tómas Már Sigurðsson,

forstjóri Alcoa á Íslandi


Tengdar fréttir

Viljayfirlýsingar um stóriðju á Bakka með leynd

Landsvirkjun hefur undirritað viljayfirlýsingar við þrjú fyrirtæki um nýtingu orkunnar í Þingeyjarsýslum. Upplýsingunum hefur af viðskiptaástæðum verið haldið leyndum gagnvart almenningi. Verði af samningum þýðir þetta að álver við Húsavík er úr sögunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×