Sala á nautakjöti aukist um tæplega 21 prósent Boði Logason skrifar 19. september 2011 10:01 Nautakjöt mynd úr safni
Sala á nautakjöti í ágúst síðastliðnum var 20,6 prósent meiri en á sama tíma í fyrra en þetta kemur fram í nýjum framleiðslu- og sölutölum sem Bændasamtökin hafa látið taka saman. Þrátt fyrir aukninguna í mánuðinum var ársfjórðungssalan 0,3 prósent minni en í fyrra. Á heimasíðu samtakana segir að þessi mikla sölu aukning í ágúst hafi leitt til þess að árssalan, þ.e. salan síðastliðna 12 mánuði, er nú 0,5% meiri en 12 mánuðina þar á undan. „Heildarframleiðsla nautgripakjöts sl. 12 mánuði var 3.799 tonn af 26.870 tonna framleiðslu kjöts í það heila og er hlutdeild nautakjötsins því 14,1% í framleiðslunni. Alls nam sala nautgripakjöts í mánuðinum 345 tonnum og sl. 12 mánuði var salan 3.827 tonn. Sé horft til sundurliðunar á sölu nautgripakjöts í mánuðinum var sem fyrr mest sala í ungnautakjöti eða 194 tonn og á 12 mánaða grunni nemur ungnautakjötssalan 2.176 tonnum eða 56,8% af heildarsölunni. Sala á kýrkjöti á ársgrunni nam 1.360 tonnum eða sem nemur 35,8% af heildarsölunni," segir á heimasíðunni. Þar segir einnig að sé litið til annarra kjöttegunda komi í ljós að heildarsalan hefur dregist saman síðustu tólf mánuði um 3,9 prósent og sýni einungis nautgripakjöt söluaukningu frá því fyrir ári. „Mest er salan á alífuglakjöti á landsvísu eða 6.926 tonn (29,8%) og þar á eftir kemur svínakjöt með 6.008 tonn eða 25,8% markaðshlutdeild. Er þetta í fyrsta skipti í tvö ár sem svínakjötssala fer upp fyrir kindakjötið. Þess ber að geta að litlu munar á þessum kjöttegundum enda situr kindakjöt í þriðja sæti með sölu upp á 5.944 tonn (25,6% markaðshlutdeild)/SS.“
Mest lesið Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Viðskipti innlent Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Viðskipti innlent Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð Viðskipti innlent Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Viðskipti innlent „Lán á bara að vera lán“ Viðskipti innlent Komin með ný nöfn Viðskipti innlent ChatGPT virkar á ný Viðskipti erlent Malbiksmeistari stýrir Malbikstöðinni Viðskipti innlent Jóhanna, Egill og dr. Tingting til Reykjavík Geothermal Viðskipti innlent Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Samstarf Fleiri fréttir Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð „Lán á bara að vera lán“ Komin með ný nöfn Jóhanna, Egill og dr. Tingting til Reykjavík Geothermal Malbiksmeistari stýrir Malbikstöðinni Svara ekki spurningum um mögulegar uppsagnir hjá NetApp Bankaskattar séu fimm sinnum hærri en í samanburðarlöndum Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Sjá meira