Arion býður óverðtryggð íbúðalán Jón Hákon Halldórsson skrifar 1. september 2011 16:02 Það er spurning hvaða áhrif útspil Arion banka mun hafa á fasteignamarkaðinn í Reykjavík. Mynd/ Vilhelm.
Arion banki hefur ákveðið að bjóða óverðtryggð húsnæðislán og mun bjóða slík lán frá 15. september til 25 eða 40 ára. Lánin eru með föstum vöxtum til fimm ára. Á fimm ára fresti eru vextirnir endurskoðaðir og taka mið af markaðsvöxtum sem í gildi eru á hverjum tíma. Viðskiptavinir geta einnig valið aðra kosti ef þau óverðtryggðu kjör sem þá bjóðast eru óhagstæð. Samkvæmt tilkynningu frá Arion verður um tvennskonar óverðtryggð lán að ræða. Annars vegar lán sem nema allt að 60% veðhlutfalli fasteignar, bera 6,45% fasta vexti í fimm ár og eru til 25 eða 40 ára. Hins vegar viðbótarlán sem nema frá 60% til 80% veðhlutfalli fasteignar, bera 7,55% fasta vexti i fimm ár og eru til allt að 25 ára. Til að eiga kost á láni þurfa viðskiptavinir að standast greiðslumat bankans. Arion banki segir að um sé að ræða nýjung á íslenskum fjármálamarkaði þar sem binding hagstæðra, óverðtryggðra vaxta til fimm ára hafi ekki áður boðist lántakendum. Þar að auki geti viðskiptavinir að fimm árum liðnum valið á milli annarra kosta, svo sem að breyta láninu í verðtryggt lán eða greiða það upp án sérstaks uppgreiðslugjalds.
Mest lesið Vilja ekkert með áfengi nágranna sinna hafa Viðskipti erlent Svört skýrsla um Metro: Mygluvöxtur í kælinum, hættulegt leiksvæði og húsnæðið „verulega vanþrifið“ Neytendur Vísar ásökunum um samráð á bug Neytendur Fríhöfnin endurhönnuð í anda íslenskrar náttúru Viðskipti innlent Forstjóri Kaldvíkur lét af störfum í samráði við stjórn Viðskipti innlent Hætt sem framkvæmdastjóri Klíníkurinnar Viðskipti innlent Stækka hótelveldið á Suðurlandi Viðskipti innlent Borið á kvörtunum undan leigubílstjórum Neytendur Óskar eftir starfslokum Viðskipti innlent Gagnrýna seinagang olíufélaganna og ýja að samráði Neytendur Fleiri fréttir Forstjóri Kaldvíkur lét af störfum í samráði við stjórn Fríhöfnin endurhönnuð í anda íslenskrar náttúru Gervigreindin geti verið lykillinn að tollalækkun Besti fjórðungurinn í sögu Alvotech Sögulegur hagnaður á samrunatímum Óskar úr fjarskiptum í fiskinn Hætt sem framkvæmdastjóri Klíníkurinnar Lægri tollar á samkeppnisríkin veiki stöðuna svo um munar Atvinnuleysi eykst hægt með lækkandi sól Almannatenglar stofna fjölmiðil Lánshæfið hækkar úr stöðugu í jákvætt Fleiri ferðamenn og fleiri utanlandsferðir Skilur ekkert í stjórnvöldum að hafa ekki stöðvað „græðgisvæðingu“ í bílastæðamálum Stækka hótelveldið á Suðurlandi Óskar eftir starfslokum „Ekkert Viking eða Gull“ á nýjum stað í B5 Segir ofboðslegan undirliggjandi þrýsting á fasteignamarkaði Reikna með að skila hagnaði á næsta ári Frá Gamma til Arctica og nú Seðlabankans Atvinnuleysi 2,8 prósent í júní Trump-tollarnir hafa tekið gildi Ísland klemmist á milli í alþjóðlegu tollastríði Vonbrigði með makrílinn en síldin og loðnan veki von Ráðin framkvæmdastjóri Magio – viðburðasmiðju Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Alaska Airlines hefur daglegt flug til Keflavíkur næsta sumar Vefur og app Íslandsbanka lágu niðri Tímabundin dreifing á sjónvarpsefni Sýnar hjá Símanum Hækkun tolla eins og þruma úr heiðskíru lofti Forstjóraskipti hjá Ice-Group Sjá meira
Svört skýrsla um Metro: Mygluvöxtur í kælinum, hættulegt leiksvæði og húsnæðið „verulega vanþrifið“ Neytendur
Svört skýrsla um Metro: Mygluvöxtur í kælinum, hættulegt leiksvæði og húsnæðið „verulega vanþrifið“ Neytendur