Íslendingar enn verulega svartsýnir á ástandið 29. mars 2011 11:43
Þrátt fyrir að léttara sé yfir landanum nú í mars en á sama tíma í fyrra er ljóst að hann á enn verulega langt í land með að teljast vera bjartsýnn á ástand og horfur í efnahags- og atvinnumálum þjóðarinnar. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka en þetta má sjá af Væntingavísitölu Gallup sem birt var nú í morgun en gildi hennar mældist 57,8 stig nú í marsmánuði og lækkar jafnframt lítillega, eða um 2,1 stig, frá því í febrúar. Frá því að kreppan skall á hefur vísitalan hæst farið upp í 69,9 stig sem var í ágúst síðastliðnum, en lægst hefur hún mælst 19,5 stig sem var í ársbyrjun 2009. Sem kunnugt er mælir vístalan væntingar neytenda til efnahags- og atvinnulífsins, og þegar vísitalan er undir 100 stigum eru fleiri neytendur svartsýnir en bjartsýnir. Er því ljóst að mun fleiri Íslendingar eru svartsýnir en bjartsýnir um þessar mundir. Allar undirvísitölur Væntingavísitölunnar, að mati á atvinnuástandinu undanskildu, lækkuðu á milli febrúar og mars. Þannig lækkuðu væntingar íslenskra neytenda til aðstæðna í efnahags-og atvinnumálum þjóðarinnar eftir 6 mánuði um 3,0 stig og mælist sú vísitala nú 88,3 stig. Mat á núverandi ástandi lækkaði mun minna í stigum talið, eða um 0,7 stig, en sú vísitala mælist aðeins 12,0 stig. Mest var lækkunin á vísitölunni sem mælir mat á efnahagslífinu en hún lækkar um heil 8,1 stig milli mánaða og mælist nú 49,8 stig. Á hinn bóginn hækkar sú vísitala sem mælir mat á atvinnuástandinu lítillega, eða sem nemur um 1,9 stig, og mælist hún nú 62,0 stig.
Mest lesið Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Sjá meira