Innlent

Aukið samstarf hjá háskólum

Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra.
Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra.
Opinberu háskólarnir fjórir, Háskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri, Landbúnaðarháskóli Íslands og Hólaskóli-Háskólinn á Hólum hafa gert með sér samkomulag um sameiginlega stoðþjónustu á ákveðnum sviðum. Rektorar skólanna skrifuðu undir samkomulag þessa efnis að viðstöddum mennta- og menningarmálaráðherra í dag.

Fyrsta skref samstarfsins verður sameiginlegt upplýsingakerfi fyrir nemendur og um kennslu en um leið verður tekið upp samræmt kerfi fyrir akademískt mat á starfsmönnum og varðandi ráðningar, framgang og launabreytingar. Stefnt er að því að víkka út samninginn til fleiri sviða stoðþjónustunnar.

„Þá eru hafnar viðræður milli akademískra starfsmanna skólanna um samstarf á sviði námsframboðs. Þetta verður meðal annars gert með samkennslu og auðveldara aðgengi nemenda að námskeiðum milli skóla. Markmiðið er að nýta betur þann mannauð sem skólarnir búa yfir og auka valfrelsi nemenda,“ segir í tilkynningu.

„Samstarf opinberra háskóla byggir á stefnu þar að lútandi sem sett var af mennta- og menningarmálaráðherra í ágúst síðastliðnum. Þá var skipuð sérstök verkefnisstjórn en í henni sitja rektorar skólanna ásamt fleirum.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×