Sú er mín bæn Kjartan Jóhannsson skrifar 10. ágúst 2011 11:00 Ég drúpi höfði og græt með Noregi, aðstandendum, vinum og þjóðinni allri. Aldrei fyrr hef ég þurft að syrgja svo marga unga menn og konur í blóma lífsins, deydd fyrir áhuga sinn á að bæta heiminn, sitt eigið samfélag og afnema misrétti hvarvetna þar sem það birtist. Þessi hugsjón er sterk, henni fær ekkert haggað. Ódæðisverkið verður að vera hvatning til þess að virða hugsjónina og gera betur. Aðeins þannig verður rétt við brugðist og minningu unga hugsjónafólksins sómi sýndur. Vondir atburðir sem stefnt er gegn hinu góða, skilningi okkar á hvert öðru og viðleitninni til þess að brúa bil, mega ekki hrekja okkur af leið. Öllu fremur verða hinir hörmulegu atburðir í Noregi að efla okkur öll, ekki bara í Noregi, heldur hvarvetna, til þess að vinna gegn skorti á umburðarlyndi og í andstöðunni við ofstopa, þjóðháttarembu og afsprengi þeirra í kynþáttahatri og ofbeldi. Ungmennamorðin í Noregi eru verk vitfirrts manns, en hugarfarið fann sér einhvern veginn vaxtarskilyrði. Gegn slíkum jarðvegi verður að bregðast, hvar sem hann birtist. Öfgafull umræða, hróplegar einkunnir um vondar eigindir þeirra sem eru á annarri skoðun en skríbentinn geta spillt samfélaginu og vísað þeim sem öfgar hrífa í vondan stað og illar gerðir. Þess vegna er okkur öllum skylt að gæta hófs í orði og æði. Ég veit að hatrið og hefndin eru eðlileg viðbrögð við unglingamorðunum. Það má samt ekki taka völdin yfir hugum okkar og hjörtum. Hugsjónir fórnarlambanna eru huggunin, ekki viðhorfið til hins illa geranda. Bæn mín er sú, að Norðmenn, Íslendingar og allir hinir skilji þetta og tileinki sér. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Sættum okkur ekki við atvinnuleysi Illugi Gunnarsson,Ragnhildur Björt Björnsdóttir Skoðun Einfaldasta sagan er ekki alltaf sú sanna Sigurður Árni Reynisson Skoðun Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir Skoðun Halldór 25.07.2026 Halldór Hver fer í slíkar „samningaviðræður“? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Ég er ekki Evrópusinni Óðinn Freyr Baldursson Skoðun Þetta snýst um aðild Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Hvers vegna „nei“ er eina rökrétta svarið þann 29. ágúst Eggert Sigurbergsson Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir Skoðun Íslenskir vefir á faraldsfæti Birgir Hrafn Birgisson Skoðun Skoðun Skoðun Einfaldasta sagan er ekki alltaf sú sanna Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver fer í slíkar „samningaviðræður“? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sættum okkur ekki við atvinnuleysi Illugi Gunnarsson,Ragnhildur Björt Björnsdóttir skrifar Skoðun Íslenskir vefir á faraldsfæti Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Ég er ekki Evrópusinni Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Hjarðarbólsoddi Oddur Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta snýst um aðild Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna „nei“ er eina rökrétta svarið þann 29. ágúst Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hvaða kröfur eigum við að gera? Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna venjulegt launafólk á að segja JÁ? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar Skoðun Er kominn tími á „Íslenska landklasann“? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Um hvað er hægt að semja? Jónas Már Torfason skrifar Skoðun Sumarið, samveran og samspil taugakerfa Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Þegar peningarnir og pólitíkin mæta nýjum veruleika Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Bíp... bíp... bíp… Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Króna eða evra? Bolli Héðinsson skrifar Skoðun Dauðans alvara – fölsuð lyf og ólögleg lyfsala Alma D. Möller,Rúna Hauksdóttir skrifar Skoðun Hvað er samfélagsmiðill? Anna Laufey Stefánsdóttir skrifar Skoðun Stöðugleiki í heljargreipum Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu Hjörtur Hjartarson skrifar Skoðun Það sem gögnin fundu ekki Elliði Vignisson skrifar Skoðun Eru Íslendingar afglapar í samningatækni? Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Baldur snýr heim á Breiðafjörð Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar allir bera ábyrgð? Snorri Birgisson skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru samningaviðræður Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Dagur, bannað að plata! Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Íslenska sumarveðrið dýrmæt auðlind? Gunnar Salvarssson skrifar Sjá meira
Ég drúpi höfði og græt með Noregi, aðstandendum, vinum og þjóðinni allri. Aldrei fyrr hef ég þurft að syrgja svo marga unga menn og konur í blóma lífsins, deydd fyrir áhuga sinn á að bæta heiminn, sitt eigið samfélag og afnema misrétti hvarvetna þar sem það birtist. Þessi hugsjón er sterk, henni fær ekkert haggað. Ódæðisverkið verður að vera hvatning til þess að virða hugsjónina og gera betur. Aðeins þannig verður rétt við brugðist og minningu unga hugsjónafólksins sómi sýndur. Vondir atburðir sem stefnt er gegn hinu góða, skilningi okkar á hvert öðru og viðleitninni til þess að brúa bil, mega ekki hrekja okkur af leið. Öllu fremur verða hinir hörmulegu atburðir í Noregi að efla okkur öll, ekki bara í Noregi, heldur hvarvetna, til þess að vinna gegn skorti á umburðarlyndi og í andstöðunni við ofstopa, þjóðháttarembu og afsprengi þeirra í kynþáttahatri og ofbeldi. Ungmennamorðin í Noregi eru verk vitfirrts manns, en hugarfarið fann sér einhvern veginn vaxtarskilyrði. Gegn slíkum jarðvegi verður að bregðast, hvar sem hann birtist. Öfgafull umræða, hróplegar einkunnir um vondar eigindir þeirra sem eru á annarri skoðun en skríbentinn geta spillt samfélaginu og vísað þeim sem öfgar hrífa í vondan stað og illar gerðir. Þess vegna er okkur öllum skylt að gæta hófs í orði og æði. Ég veit að hatrið og hefndin eru eðlileg viðbrögð við unglingamorðunum. Það má samt ekki taka völdin yfir hugum okkar og hjörtum. Hugsjónir fórnarlambanna eru huggunin, ekki viðhorfið til hins illa geranda. Bæn mín er sú, að Norðmenn, Íslendingar og allir hinir skilji þetta og tileinki sér.
Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir Skoðun
Skoðun Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir skrifar
Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar
Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar
Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir Skoðun