Tæplega 11,8 milljarðar af innlendum gjaldeyri til landsins 15. nóvember 2011 10:50 Seðlabanki Íslands.
Seðlabankinn gaf heimildir til þess í fyrra að flytja inn tæplega 11,8 milljarða af innlendum gjaldeyri til landsins. Þessar heimildir voru veittar á grundvelli undanþága frá gjaldeyrishöftunum en höftin kveða m.a. á um að bannað sé að flytja aflandskrónur til landsins. Þetta kom fram í svari efnahags- og viðskiptaráðherra við fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur þingmanns Framsóknarflokksins á alþingi. Vigdís spurði um innflutning á aflandskrónum frá því að gjaldeyrishöftunum var komið á. Í svari ráðherra kemur fram að fyrir utan 11,8 milljarða kr. í fyrra voru 181 milljónir í innlendum gjaldeyri flutt til landsins árið 2009. Það sem af er þessu ári hafa verið veittar heimildir til innflutnings á tæpum 3,8 milljörðum. Samtals nemur innflutningurinn því tæpum 16 milljörðum á síðustu þremur árum. Vigdís vildi einnig vita hvernig þessar heimildir skiptust á milli fyrirtækja og einstaklinga, bæði innlendra og erlendra, en í svarinu segir að Seðlabanki Íslands sé óheimilt að veita þær upplýsingar samkvæmt gjaldeyrislögunum. Í svarinu segir svo: „Seðlabanki Íslands hefur fallist á beiðnir um flutning á innlendum gjaldeyri hingað til lands vegna framfærslu hér á landi eða sambærilegrar notkunar eða til greiðslu skuldbindinga sem fallnar eru í gjalddaga eða hafa verið gjaldfelldar. Er miðað við að sýnt sé fram á óslitið eignarhald eiganda hins innlenda gjaldeyris frá því fyrir 28. nóvember 2008, þegar fyrstu reglur um gjaldeyrismál tóku gildi. Í tilviki innlendra einstaklinga er lögð til grundvallar sú forsenda að þeir framfæri sig og fjölskyldur sínar hér á landi og séu með fjárhagslegar skuldbindingar í innlendum gjaldeyri. Í tilviki innlendra aðila er því nóg að sýna fram á fasta búsetu hér á landi til þess að uppfylla skilyrðið um að fjármunirnir séu ætlaðir til framfærslu viðkomandi hér á landi. Í tilviki erlendra einstaklinga þarf að framvísa gögnum sem sýna fram á kostnað af framfærslu hér á landi, svo sem í tengslum við búferlaflutning til landsins, ferðalög hér á landi, skattaálagningar o.s.frv. Er þá samanlögð fjárhæð framlagðra reikninga lögð til grundvallar við afgreiðslu beiðni. Í tilviki lögaðila þarf að sýna fram á skuldbindingu í íslenskum krónum, en meginreglan er sú að ekki er fallist á beiðnir er varða utanríkisviðskipti."
Mest lesið Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Viðskipti innlent Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Viðskipti innlent Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Viðskipti innlent Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Viðskipti innlent Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Samstarf GameStop vill kaupa eBay Viðskipti erlent Sólin sest á Guide to Europe Viðskipti innlent Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Sjá meira