Viðskipti innlent

Tæplega 11,8 milljarðar af innlendum gjaldeyri til landsins

Seðlabanki Íslands.
Seðlabanki Íslands.
Seðlabankinn gaf heimildir til þess í fyrra að flytja inn tæplega 11,8 milljarða af innlendum gjaldeyri til landsins. Þessar heimildir voru veittar á grundvelli undanþága frá gjaldeyrishöftunum en höftin kveða m.a. á um að bannað sé að flytja aflandskrónur til landsins.

Þetta kom fram í svari efnahags- og viðskiptaráðherra við fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur þingmanns Framsóknarflokksins á alþingi. Vigdís spurði um innflutning á aflandskrónum frá því að gjaldeyrishöftunum var komið á.

Í svari ráðherra kemur fram að fyrir utan 11,8 milljarða kr. í fyrra voru 181 milljónir í innlendum gjaldeyri flutt til landsins árið 2009. Það sem af er þessu ári hafa verið veittar heimildir til innflutnings á tæpum 3,8 milljörðum. Samtals nemur innflutningurinn því tæpum 16 milljörðum á síðustu þremur árum.

Vigdís vildi einnig vita hvernig þessar heimildir skiptust á milli fyrirtækja og einstaklinga, bæði innlendra og erlendra, en í svarinu segir að Seðlabanki Íslands sé óheimilt að veita þær upplýsingar samkvæmt gjaldeyrislögunum.

Í svarinu segir svo: „Seðlabanki Íslands hefur fallist á beiðnir um flutning á innlendum gjaldeyri hingað til lands vegna framfærslu hér á landi eða sambærilegrar notkunar eða til greiðslu skuldbindinga sem fallnar eru í gjalddaga eða hafa verið gjaldfelldar. Er miðað við að sýnt sé fram á óslitið eignarhald eiganda hins innlenda gjaldeyris frá því fyrir 28. nóvember 2008, þegar fyrstu reglur um gjaldeyrismál tóku gildi.

Í tilviki innlendra einstaklinga er lögð til grundvallar sú forsenda að þeir framfæri sig og fjölskyldur sínar hér á landi og séu með fjárhagslegar skuldbindingar í innlendum gjaldeyri. Í tilviki innlendra aðila er því nóg að sýna fram á fasta búsetu hér á landi til þess að uppfylla skilyrðið um að fjármunirnir séu ætlaðir til framfærslu viðkomandi hér á landi. Í tilviki erlendra einstaklinga þarf að framvísa gögnum sem sýna fram á kostnað af framfærslu hér á landi, svo sem í tengslum við búferlaflutning til landsins, ferðalög hér á landi, skattaálagningar o.s.frv. Er þá samanlögð fjárhæð framlagðra reikninga lögð til grundvallar við afgreiðslu beiðni.

Í tilviki lögaðila þarf að sýna fram á skuldbindingu í íslenskum krónum, en meginreglan er sú að ekki er fallist á beiðnir er varða utanríkisviðskipti."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×