Fjölnir vann lífsnauðsynlegan sigur á Snæfelli Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. febrúar 2011 20:58 Bergdís Ragnarsdóttir skoraði 8 stig fyrir Fjölni í kvöld.
Fjölnir vann gríðarlega mikilvægan sigur í baráttunni fyrir lífi sínu í Iceland Express deild kvenna í körfubolta í kvöld þegar Fjölnisstelpur unnu ellefu stiga sigur á toppliði B-deildar, Snæfelli, í Grafarvogi, 67-56. Snæfell tapaði þarna sínum öðrum leik í röð en liðið er samt enn á toppi B-deildarinnar með sextán stig eða átta stigum meira en Fjölnir sem komst upp að hlið Grindavíkur með þessum sigri. Natasha Harris átti frábæran leik fyrir Fjölni en hún var með 31 stig, 7 fráköst og 8 stoðsendingar auk þess að setja niður fjóra þrista í lokaleikhlutanum þegar Fjölnir gerði út um leikinn. Inga Buzoka var með 10 stig og 19 fráköst en Bergdís Ragnarsdóttir var stigahæst íslensku stelpnanna með 8 stig. Monique Martin var með 18 stig og 18 fráköst hjá Snæfelli, Laura Audere var með 12 stig og Hildur Björg Kjartansdóttir skoraði 11 stig. Fjölnir byrjaði leikinn vel og komst í 14-3 og 17-5 en það munaði síðan aðeins einu stigi á liðunum eftir fyrsta leikhlutann þar sem Fjölnir var 19-18 yfir. Fjölnir hélt Monique Martin í einu stigi í fyrsta leikhlutanum. Snæfell komst yfir í byrjun annars leikhluta en Fjölnisliðið fór þá aftur í gang og breytti stöðunni úr 21-22 í 31-22 á fjórum mínútum. Fjölnir var síðan með fimm stiga forskot í hálfleik,33-28. Natasha Harris var komin með 11 stig, 5 fráköst og 6 stoðsendingar í hálfleik. Snæfell byrjaði seinni hálfleikinn vel og komst yfir í 37-38 eftir fjórar mínútur en Snæfellsstelpur skoruðu síðan ekki síðustu sex mínútur leikhlutans og Fjölnir náði því 43-38 forystu fyrir lokaleikhlutann. Natasha Harris hóf fjórða leikhlutann á því að skora þrjá þrista á fyrstu þremur mínútunum og kom Fjölnisliðinu tólf stigum yfir, 53-41. Harris skoraði á endanum sautján stig í lokleikhlutanum (Snæfellsliðið skoraði samtals 18 stig) og Fjölnir fagnaði ellefu stiga sigri.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Enski boltinn „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Enski boltinn Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar Fótbolti Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn Tvöfaldur heimsmeistari látinn eftir skotárás Sport United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Fótbolti Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Fleiri fréttir ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Sjá meira