Kúgun kvenna og barna Sigurður Pálsson skrifar 27. júlí 2011 07:30 Sigríður Þorgeirsdóttir heimspekiprófessor skrifaði athyglisverða hugvekju um ofbeldi gegn konum og börnum í Fréttablaðið fyrir skömmu. Svo áleitin var hugvekjan að hún vakti meira að segja huga minn, karlklerks á eftirlaunum. Í hugvekjunni beinir Sigríður athyglinni að menningarbundnum rótum slíks ofbeldis, sem hún telur ekki nægur gaumur gefinn. Hún vekur athygli á rótum vestrænnar menningar og leitast við að greina hvaðan hugmyndir vestrænna hvítra karla um rétt sinn til að vaða yfir konur og börn með ofbeldi séu komnar. Hún skrifar: „Þetta virðingarleysi gagnvart öllum þeim sem eiga ekki hlutdeild í kerfi karlhverfra, hvítra yfirráða, gegnsýrir hugmyndasögu Vesturlanda. Í einu af ritum Páls postula í Biblíunni er boðað að konum skuli meinað að tala í kirkjum. Konur eru sagðar óhreinar." Sigríður segir þennan „hugarburð" eiga sér „rætur í forngrískri heimspeki sem leggur fræðilegan grunn að kvenfyrirlitningu okkar menningar. Heimspeki Aristótelesar fer í gegnum heimspeki Tómasar frá Akvínó beint inn í kenningar kristinnar kirkju." Hvetur Sigríður til þess að í menntun guðfræðinga, heimspekinga og kennara sé lögð meiri áhersla á menningarlega greiningu þessa vandamáls. Síðan spyr hún: „Hefur samstaða karla í gegnum aldirnar að einhverju leyti fengið kraft úr ímynd sambands guðföður og sonar?" Upptendraður af hvatningu prófessorsins til að skoða þennan vanda í ljósi menningar hvarflaði hugur minn til Kína en þar tíðkaðist öldum saman að reyra fætur stúlkubarna í frumbernsku til að auka kvenleika þeirra, þannig að þær urðu nær ófærar til gangs. Hugurinn leitaði einnig til hins kommúníska Kína þar sem stúlkubörn voru gjarnan borin út fremur en piltbörn eftir að stjórnvöld settu kvóta á barneignir. Og mér var hugsað til Indlands þar sem konur hafa verið brenndar lifandi með líki eiginmanna sinna. Og hugurinn leitaði til Afríku, þar sem víða tíðkast að meta gildi kvenna til kýrverðs og ungar stúlkur eru limlestar með umskurði. Og allt eru þetta hefðir lausar við áhrif frá þeim kumpánum Aristótelesi, Páli postula og Tómasi frá Akvínó, og þar sem kristnar ímyndir um samband „guðföður og sonar" eru órafjarri. Þetta menningarlega sjónarhorn vakti með mér þá spurn hvort hér væri ekki um að ræða sammannlegan brest, ásókn í vald og hneigð til undirokunar þeirra sem lítils mega sín, hneigð sem býr til eða leitar að farvegi innan heimspekikerfa, trúarbragða og menningar. Er hugsanlegt að menningararfurinn og trúarbrögðin sem slík séu ekki sökudólgurinn, heldur maðurinn sjálfur, hver sem hann er og hvar sem hann er? Ástæða er vissulega til að greina þá þætti menningar eða átrúnaðar sem hægt er að misbeita til illvirkja. Við þá greiningu ættum við jafnframt að hjálpast að við að greina og rækta þá þætti í menningu og trúarbrögðum hvarvetna í heiminum sem hamlað geta hvers konar kúgun og ofbeldi. Þá væri jafnvel hægt að syngja með Páli postula óð hans til kærleikans sem hefst svona: „Þótt ég talaði tungum manna og engla en hefði ekki kærleika, yrði ég hljómandi málmur eða hvellandi bjalla." Í slíku mannræktar- og uppbyggingarstarfi væri dýrmætt að geta notið leiðsagnar fordómalausra og víðlesinna fræðimanna. Ég þakka Sigríði hugvekjuna. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Ástandið, jólavókaflóðið og druslur nútímans Sæunn I. Marinósdóttir Skoðun VII. Aðförin að Ólafi Jóhannessyni Hafþór S. Ciesielski Skoðun Þegar þeir sem segjast þjóna þjóðinni ráðast á hana Ágústa Árnadóttir Skoðun Djöfulsins, helvítis, andskotans pakk Vilhjálmur H. Vilhjálmsson Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson Skoðun Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra – taka tvö Eyjólfur Pétur Hafstein Skoðun Þegar jólasveinninn kemur ekki á hverri nóttu Guðlaugur Kristmundsson Skoðun Var ég ekki nógu mikils virði? Kristján Friðbertsson Skoðun Fólkið sem hverfur... Kristján Fr. Friðbertsson Skoðun Andi hins ókomna á stjórnarheimilinu? Jean-Rémi Chareyre Skoðun Skoðun Skoðun Ástandið, jólavókaflóðið og druslur nútímans Sæunn I. Marinósdóttir skrifar Skoðun Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra – taka tvö Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Mikilvægi björgunarsveitanna Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Andi hins ókomna á stjórnarheimilinu? Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Var ég ekki nógu mikils virði? Kristján Friðbertsson skrifar Skoðun Jólin eru rökfræðilega yfirnáttúruleg – og sagan sem menn dóu fyrir lifir enn Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þegar jólasveinninn kemur ekki á hverri nóttu Guðlaugur Kristmundsson skrifar Skoðun 100 lítrar á mínútu Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Stöðugleiki sem viðmið Arnar Laxdal skrifar Skoðun Taktu af skarið – listin að breyta til áður en þú ert tilbúin Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Loftslagsmál: tölur segja sögur en hvaða sögu viljum við? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hvaðan koma jólin okkar – og hvað kenna þau okkur um menningu? Margrét Reynisdóttir skrifar Skoðun Náungakærleikur á tímum hátíða Hanna Birna Valdimarsdóttir,Harpa Fönn Sigurjónsdóttir,Helga Edwardsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar fyrir heimsendinguna? Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Innviðir og öryggi í hættu í höndum ráðherra Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun „Steraleikarnir“ Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Fínpússuð mannvonska Armando Garcia skrifar Skoðun Fólkið sem hverfur... Kristján Fr. Friðbertsson skrifar Skoðun Gengið til friðar Ingibjörg Haraldsdóttir,Elín Oddný Sigurðardóttir skrifar Skoðun Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Mótmæli bænda í Brussel eru ekki sjónarspil – þau eru viðvörun Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar gigtin stjórnar jólunum Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fullveldi í framkvæmd Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Verður Flokkur fólksins að Flótta fólksins? Júlíus Valsson skrifar Skoðun „Rússland hefur ráðist inn í 19 ríki“ - og samt engin ógn? Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Fæðuöryggi sem innviðamál í breyttu alþjóðakerfi Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller skrifar Skoðun Gluggagægir fyrir innan gluggann. Gervigreindin lifnar við Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Samstíga ríkisstjórn í sigri og þraut Kristrún Frostadóttir skrifar Skoðun Vextir á verðtryggðum lánum - ögurstund Hjalti Þórisson skrifar Sjá meira
Skoðun Jólin eru rökfræðilega yfirnáttúruleg – og sagan sem menn dóu fyrir lifir enn Hilmar Kristinsson skrifar
Skoðun Taktu af skarið – listin að breyta til áður en þú ert tilbúin Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Náungakærleikur á tímum hátíða Hanna Birna Valdimarsdóttir,Harpa Fönn Sigurjónsdóttir,Helga Edwardsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir skrifar
Skoðun Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller skrifar
Skoðun Gluggagægir fyrir innan gluggann. Gervigreindin lifnar við Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar